Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 16.05.2025

Umsóknarfrestur til: 30.05.2025

Tengiliður: Dagný Kristinsdóttir

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í tónmennt

Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi kennara í tónmennt, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann.

Í Víðistaðaskóla er rík hefð fyrir góðri og öflugri tónmenntakennslu. Tónmenntakennarinn sér um samsöng nemenda á yngsta stigi, kemur að kennslu í list og verkgreinarúllum og valgreinum á yngsta og miðstigi. Á hverju ári setja nemendur í 10.bekk söngleik á svið og þar gefst tónmenntakennara tækifæri á að koma að spennandi og skapandi verkefni.  Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í skólanum  eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Hjá okkur ríkir góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Annast kennslu í tónmennt á öllum stigum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5890, dagnyk@vidistadaskoli.is

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is 

 Umsóknarfrestur er til og með 30.maí 2025

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Deildarstjóri á mið- og unglingastigi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Safnstjóri skólasafns Lækjarskóla
Kennari í námsveri – Hvaleyrarskóli
Kennari í mið- og unglingadeild fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing til áramóta
Sérkennari – Skarðshlíðarskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Sérkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi – Engidalsskóli
Umsjónarkennarar á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Skrifstofustjóri – Víðistaðaskóli
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Aðstoðarskólastjóri – Öldutúnsskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli