Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 05.05.2025

Umsóknarfrestur til: 19.05.2025

Tengiliður: Arna B. Arnardóttir

Lækjarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% starf haustið 2025. 

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.  

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag. 

Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984).  UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda. 

Við auglýsum nú eftir kennara á yngsta stigi sem jafnframt er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullri þróun starfsins í Lækjarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna umsjónarkennslu á yngsta stigi með fjölbreyttum kennsluháttum
  • Vinna að þróun UDL og annarri skólaþróun í Lækjarskóla í samvinnu við skólasamfélagið
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við skólasamfélagið
  • Starfa samkvæmt SMT-skólafærni
  • Taka þátt í stefnumótun skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á yngsta stigi æskileg
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Víðtæk tölvukunnátta og  góð þekking á G-suite og Mentor
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og  samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.

Hafðu samband við Örnu B. Arnardóttur, skólastjóra í síma 664-5865, arna@laekjarskoli.is.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. 

Umsóknarfrestur er til 19. maí 2025.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Safnstjóri skólasafns Lækjarskóla
Kennari í námsveri – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Deildarstjóri á mið- og unglingastigi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Kennari í mið- og unglingadeild fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing til áramóta
Sérkennari – Skarðshlíðarskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Sérkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennarar á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Skrifstofustjóri – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Aðstoðarskólastjóri – Öldutúnsskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli