Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 14.03.2024

Umsóknarfrestur til: 02.04.2024

Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttir

Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta stigi í 100% starf haustið 2024.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.  

 

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag. 

Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984).  UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda. 

Við auglýsum nú eftir kennara á yngsta stigi sem jafnframt er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullri þróun starfsins í Lækjarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

·         Annast almenna umsjónarkennslu á yngsta stigi með fjölbreyttum kennsluháttum.

·         Vinna að þróun UDL og annarri skólaþróun í Lækjarskóla í samvinnu við skólasamfélagið.

·         Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við skólasamfélagið

·         Starfa samkvæmt SMT-skólafærni

·         Taka þátt í stefnumótun skólans. 

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari (leyfisbréf skal fylgja umsókn).

·         Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á yngsta stigi æskileg.

·         Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.

·         Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

·         Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

·         Mjög góð íslenskukunnátta

·         Víðtæk tölvukunnátta og  góð þekking á G-suite og Mentor.

·         Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi

·         Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

·         Stundvísi og  samviskusemi

 

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.

Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2024.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

 

 

 

 

 

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Dönskukennari á unglingastigi – Öldutúnsskóli
Skóla- og frístundaliði – Áslandsskóli
Stuðningsfulltrúi – Áslandsskóli
Umsjónarkennari á miðstig – Áslandsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Áslandsskóli
Íslenskukennari á unglingastigi- Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi Engidalsskóla
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á miðstig Engidalsskóla
Náttúrufræðikennari – Hvaleyrarskóli
Sérkennari – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi– Hvaleyrarskóli
Sérkennari í sérdeild – Setbergsskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Íþróttakennsla – Engidalsskóli
Sérkennari í sérdeild – Öldutúnsskóli
Stærðfræðikennari á unglingastigi – Öldutúnsskóli
Sérkennari – Skarðshlíðarskóli
Heimilisfræðikennari – Skarðshlíðarskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Leiklistarkennari – Skarðshlíðarskóli
Danskennari – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Íþróttakennari – Hraunvallaskóli
Smíðakennari – Hraunvallaskóli
Leiklistarkennari – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli