Grunnskólar

Börn byrja í grunnskóla árið sem þau verða 6 ára og eru þá skólaskyld í 10 ár.

Að hefja nám í grunnskóla

Sækja um skóla

Grunnskólar sveitarfélagsins eru öllum börnum opnir. Starfsemi og skóladagatal er hægt að kynna sér á vefsíðum grunnskólanna.

Innritun

Hafnarfjörður er eitt skólaumdæmi skipt upp í skólahverfi. Lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það á örugga skólavist. Þú getur líka sótt um skóla fyrir barnið í öðrum hverfum.

Þegar barnið þitt verður sex ára á árinu færð þú póst í upphafi árs með upplýsingum um innritun í grunnskóla. Innritun hefst í upphafi árs og er til 1. febrúar fyrir skólagöngu um haustið. Eftir þann tíma fækkar skólum sem er í boði. Þú innritar barnið þitt á Mínum síðum á vefnum.

Þegar nær dregur vori mun sá skóli sem barnið þitt fékk skólavist í senda þér upplýsingar um skólastarfið framundan, meðal annars skráningar í frístundaheimili, mataráskrift og annað sem þú þarft að vita.

Umsóknir um aðra grunnskóla í Hafnarfirði og vegna grunnskóla í öðrum sveitarfélögum þurfa að berast beint til viðkomandi skóla og ef/þegar sú skólavist er samþykkt þarf að sækja um greiðsluþátttöku Hafnarfjarðarbæjar vegna skólavistarinnar. Sótt er um greiðsluþáttöku á Mínum síðum.

 

Hvað á að taka með í skólann?

Það þarf að vera með skólatösku, nesti og sundföt þegar það á við. Börnin fara út í frímínútur tvisvar á dag og er því gott að þau séu klædd eftir veðri og jafnvel með auka föt í töskunni. Skólinn útvegar allar námsbækur, stílabækur og ritföng.

Hlutverk foreldra

Þú berð ábyrgð á námi barna þinna og ætlast er til að þú fylgist með náminu í samvinnu við barnið og kennara þess.

Ef barnið þarf frí frá skóla verður þú að sækja um leyfi fyrir því. Ef barnið er veikt þarftu að tilkynna það til skólans. Öll röskun á námi vegna fjarveru barnsins frá skóla er á þína ábyrgð, og verður þú að sjá til þess að barnið vinni það upp sem það kann að missa úr náminu.