Leikskólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Þar er hlúð að börnum með skapandi og hvetjandi starfi.

Leikskólar

Innritun

Sækja um leikskóla

Hægt er að sækja um leikskóla fyrir barn um leið og kennitala þess er skráð. Biðlistinn raðast eftir fæðingardegi og ári, þannig að elstu börnin innritast fyrst.

Sækja um leikskóladvöl

Þú sækir um leikskóladvöl fyrir barnið í Völu. Umsókn þarf að skila inn fyrir 1. mars árið sem óskað er eftir dvölinni. Barn verður að eiga lögheimili í Hafnarfirði til að fá leikskóladvöl, en það getur verið á biðlista þó að lögheimili sé annars staðar.

Þú getur sótt um fleiri en einn leikskóla í umsókninni. Endilega skoðaðu þá leikskóla sem eru í boði, hafðu samband við viðkomandi leikskólastjóra og kynntu þér starfið. Ef það er ekki laust í leikskólann sem er í aðalvali ræður leikskóli í aukavali, ef þar er ekki laust færðu pláss í leikskóla þar sem laust er. Þú getur valið dvalartíma frá 4 klukkustundum og upp í 8,5 á dag, en þá alltaf á sama tíma alla vikudaga.

Úthlutun á leikskólaplássi

Þegar barnið fær pláss á leikskóla færðu tölvupóst með boði um að staðfesta vistina hjá leikskólastjóra. Börn raðast á biðlista eftir kennitölu og röð á biðlista ræður hvaða barn fær boð um leikskólapláss. Eldri börn ganga fyrir yngri börnum. Börn sem falla undir skilgreiningu um forgang geta komist fyrr að.

Forgangur að leikskóla

Börn við sérstakar aðstæður geta fengið forgang inn í leikskóla. Sótt er um forgang á Mínum síðum. Í sumum tilvikum þarf að skila inn vottorði frá viðurkenndum greiningaraðilum.

Hægt er að sækja um forgang fyrir:

  • Fötluð börn (vottorð um greiningu).
  • Börn með þroskafrávik (vottorð um greiningu).
  • Börn sem búa við erfiðleika, barnaverndarmál (vottorð frá félagsmálayfirvöldum). 
  • Börn sem eiga foreldra eða systkini með alvarleg veikindi eða fötlun (vottorð frá lækni eða öðrum opinberum aðilum).
  • Börn sem eiga foreldra undir lögaldri (18 ára).
  • Börn einstæðra foreldra með þrjú eða fleiri börn á framfæri og elsta barn er 9 ára eða yngra.
  • Þríburar.

Sumarfrí og lokanir

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir fimm daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru fjórir skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Hægt er að sjá skóladagatal hvers leikskóla fyrir sig á vefsíðum leikskólanna. 

Börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir síðustu tvær vikurnar í júlí. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld á meðan sumarfríi og lokunum stendur.

Sjálfstætt starfandi leikskólar

Þú getur óskað eftir dvöl í einkareknum leikskóla fyrir barnið þitt og fengið gjaldið niðurgreitt ef leikskólinn er með uppeldisstefnu sem er afgerandi frábrugðin leikskólum Hafnarfjarðar. Foreldrar í fullu námi geta sótt um einkarekna leikskóla frá 12 mánaða aldri barns.