Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Laugardaginn 10. maí kl. 13 bjóðum við ykkur velkomin á spjall um sýninguna Alverund ásamt listamanninum Jónu Hlíf Halldórsdóttur og sýningarstjóranum Hólmari Hólm. Á sýningunni vinnur Jóna Hlíf með samspil texta og mynda og kannar sköpunarmátt tungumálsins – hvernig það tengir okkur og gerir okkur fært að tjá okkur, auk þess hvernig merking flæðir á milli menningarheima. Þannig tekst hún á við það hvað það þýðir að vera manneskja og hvernig tungumálið mótar skilning okkar á heiminum, hugmyndir okkar um eigið sjálf og veruleika.
Ritað mál og myndræn framsetning renna saman og mörkin á milli hins staðbundna og hins algilda verða óljós, þar sem áhorfandinn fær tækifæri til þess að hugleiða brotakennt eðli tungumáls og merkingar og hina mannlegu hvöt til að tjá sig. Þá býður sýningin okkur jafnframt að velta því fyrir okkur hvernig tungumál endurspegla alheiminn og viðleitni okkar til að öðlast skilning á honum, út frá okkur sjálfum. Undir niðri er loks áhersla á hugmyndina um „mannlega tilveru“ og hvort hún verði nokkurn tímann aðskilin frá lífinu í breiðara samhengi.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir (f. 1978) útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2005, lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og MA-gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2013. Myndlist Jónu Hlífar hefur á undanförnum árum einkum snúist um að kanna konseptin tíma, verund og ímynd með hliðsjón af fyrirbærunum lýsingu, rými og framsetningu. Þá hefur Jóna Hlíf haldið einkasýningar á ýmsum sýningarstöðum bæði innanlands og erlendis, þar á meðal í BERG Contemporary og Listasafninu á Akureyri. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og eru verk hennar í eigu fjölda opinberra safna hér á landi.
Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.