Kynning á markmiðum og áherslum

Boðað er til íbúafundar þriðjudaginn 26. nóvember um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2025 auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2026-2028. Á fundinum verður fjárhagsáætlun og markmið hennar kynnt ásamt helstu áherslum hennar. Íbúafundurinn fer fram í Apótekinu í Hafnarborg og hefst kl. 17:30. Tillaga að fjárhagsáætlun 2025 var lögð fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar til fyrri umræðu miðvikudaginn 6. nóvember. Gert er ráð fyrir að seinni umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn verði þriðjudaginn 3. desember 2024.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Ábendingagátt