Allt í blóma // Rósa Sigurbergsdóttir
Þessi sýning er afrakstur nokkurra ára vinnu og efniviðurinn kemur úr öllum áttum. Útivist og umhverfið hafa alla tíð verið…
Þessi verk urðu til út frá einfaldri hugmynd: að verja meiri tíma í að vinna með efni og veita því athygli hvernig þau bregðast við.
Í upphafi var ég ekki að reyna að sýna eitthvað ákveðið. Skilningurinn kom smám saman í gegnum ferlið. Þegar lögin byggðust upp og færðust til fóru verkin að minna á jarðfræðileg form, steindir, sprungur og mynstrað landslag. Margar myndanna fengu yfirbragð loftmynda, þar sem uppbygging verður sýnileg úr fjarlægð.
Að vinna á þennan hátt krefst athygli. Ákvarðanir spretta upp úr hvernig efnið bregst við, hvernig það heldur, veitir mótstöðu eða umbreytist. Ferlið er ekki fyrirfram ákveðið heldur mótast í gegnum endurtekningu, aðlögun og tíma. Á þann hátt endurspeglar verkið jarðfræðilega myndun: hæga uppbyggingu sem mótast af kröftum sem sjást ekki alltaf strax.
Málverkin bera með sér spor þessa ferlis. Þau eru ekki myndir af ákveðnum stöðum, þó litasamsetningin sé mótuð af reynslu minni sem jarðvísindamaður á Íslandi. Þess í stað geyma þau tilfinningu fyrir landslagi, einhverju sem er í mótun, breytist og heldur áfram að verða til.
Amel Barich er marokkóskur jarðvísindamaður og þverfaglegur listamaður búsett á Íslandi. Verk hennar verða til á mótum jarðfræði, menningarlegrar minningar og myndlistar.
Með rætur í norður-afrískri arfleifð, alþjóðlegri reynslu og bakgrunn í jarðvísindum skapar hún verk sem hreyfa sig á milli innra landslags og landslags jarðar.
Myndmál hennar mótast af abstraksjón, náttúrulegum efnum og jarðfræðilegum ferlum, og fjallar um sjálfsmynd og merkingu heimilis. Í verkum hennar mætast bygging og innsæi, efnisþekking og persónuleg frásögn.
Samhliða listsköpun sinni starfar hún á þverfaglegum vettvangi jarðvísinda, jarðhita og vistfræðilegrar hugsunar. Verk hennar hafa verið sýnd og kynnt á sýningum, vinnustofum og opinberum viðburðum á Íslandi og í Marokkó
Sýningarstjórn: Elvar Gunnarsson
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 28. maí frá 18:00-20:00 og þú ert velkomin !
Aðrir opnunartímar:
Fös. 29. maí 13:00 – 18:00
Lau. 30. maí 13:00 -17:00
Sun. 31. maí 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins
—————————–
This series began with a simple impulse: to spend more time working with materials and paying attention to how they respond.
At first, I was not trying to represent anything specific. Understanding emerged gradually through the process. As layers built up and shifted, the works began to echo geological formations, minerals, marco- and micro-structures, fractures, and patterned terrains. Many of the paintings started to resemble landscapes seen from above, where structure becomes visible through distance.
Working in this way requires attention. Each decision comes from how the material responds: how it holds, resists, or transforms. The process is not fixed in advance; it develops through return, adjustment, and time. In that sense, the work mirrors geological formation: slow, accumulative, and shaped by forces that are not always immediately visible.
The paintings hold traces of that process. They are not representations of specific places, though their palette is informed by my experience as a geoscientist in Iceland. Instead, they carry a sense of landscape – something formed, altered, and continuously becoming.
Amel Barich is a Moroccan geoscientist and interdisciplinary artist based in Iceland. Her work unfolds at the intersection of geology, cultural memory, and artistic practice.
Drawing from her North African heritage, international lived experience, and a background in Earth sciences, she creates works that move between inner and planetary landscapes. Her visual language is informed by abstraction, natural materials, and geological processes, while engaging themes of identity, belonging, and the meaning of home. Her practice brings together structure and intuition, material knowledge and personal narrative.
Alongside her artistic practice, she is engaged in interdisciplinary work spanning geoscience, geothermal energy, and ecological thinking. Her work has been presented through exhibitions, workshops, and public programs in Iceland and Morocco.
Curator: Elvar Gunnarsson
There will be a special exhibition opening on Thursday, May 28th from 18:00-20:00 and you are welcome!
Other opening hours
Fri 29th may 13:00 – 18:00
Sat 30th may 13:00 – 17:00
Sun 31st may 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.