Valdimar Víðisson bæjarstjóri færir skrifstofu sína þrisvar út í annað glerhýsanna á Thorsplani í byrjun þessa sumars. Fyrsti fundurinn er í dag, föstudaginn 16. maí.

Ekki þarf að panta tíma heldur einungis mæta. Ekki þarf að uppfylla aldur eða ræða ákveðið málefni. Öll eru velkomin með það sem er þeim efst í huga. Valdimar hefur verið bæjarstjóri frá upphafi árs. Hann býður þegar íbúum viðtalstíma á þriðjudagsmorgnum. Þá þarf að panta tíma í síma 585 5506.

Nú er tækifæri að hitta hann auglitis til auglitis á Thorsplani.

Ábendingagátt