People with disabilities
Fólk með fötlun á rétt á þjónustu og stuðningi sem það þarf til að lifa sjálfstæðu og virku lífi. Í Hafnarfirði er Servant leadership Kept as a guiding principle. Warmth and encouragement are shown in all situations.
Homes and residential blocks
Sækja um þjónustuHafnarfjörður rekur íbúðakjarna og heimili sem eru hönnuð með þarfir fatlaðs fólks í huga.
Stuðningur á eigin heimili
Fólk með fötlun á að geta valið hvernig það býr, rétt eins og annað fólk í samfélaginu. Í Hafnarfirði getur fólk fötlun fengið leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði með þeim stuðningi sem það þarf þannig að það geti búið á eigin heimili eins og mögulegt er.
Hægt er að fá stuðningsþjónustu á heimili eftir aðstæðum, óskum og þörfum hvers og eins. Þjónustuna er hægt er að fá heim hvort sem fólk býr í eigin íbúð, leiguíbúð á almennum markaði eða félagslegri leiguíbúð.
Þjónusta sem hægt er að fá:
- Aðstoð við innkaup
- Stutt innlit
- Kvöld og helgar-þjónusta
- Þrif
- Virkni
Fólk sem þarf meiri þjónustu en getur samt búið heima getur fengið utan-kjarna stuðning. Þá fær það þjónustu íbúðarkjarna inn á sitt heimili.
Íbúðakjarnar
Fólk með fötlun sem hefur þörf á sérstöku húsnæði og mikinn stuðning getur fengið húsnæði í íbúðakjörnum. Þar fær fólk þjónustu eftir sínum þörfum allan sólarhringinn eða hluta úr degi. Húsnæðið er hannað með jafnrétti og vellíðan fólks í fyrirrúmi.
Hvernig sæki ég um íbúðakjarna eða stuðning?
Þú sækir um húsnæði eða stuðning á heimili á Our pages. Ef þú vilt fá meiri upplýsingar eða aðstoð geturðu bókað viðtal við ráðgjafa í síma 585 5500.