Multiculturalism
Hafnarfjörður welcomes people of foreign origin and encourages their increased participation.
Bridge builders

Bridge builders
Brúarsmiðir eru menningartenglar sem starfa á vegum Mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar. Hlutverk þeirra er að byggja brýr milli menningarheima, efla menningarnæmi og styðja við farsælt samstarf skóla og fjölskyldna.
Brúarsmiðir starfa á öllum stigum skólagöngunnar; í leikskólum, grunnskólum og í tengslum við frístunda- og íþróttastarf.
Hlutverk brúarsmiða
Brúarsmiðir nýta eigin reynslu af tveimur menningarheimum og tungumálum til að styðja við börn, foreldra og starfsfólk skóla. Þeir:
-
efla gagnkvæmt traust og skilning
-
styðja við aðlögun og samþættingu
-
útskýra reglur, væntingar og skólamenningu
-
byggja brýr milli heimilis og skóla
Stuðningurinn byggir á hlýju, virðingu og hagnýtu viðmóti og er alltaf aðlagaður að aðstæðum, tungumáli og menningarlegum bakgrunni hverrar fjölskyldu.
Stuðningur og þjónusta
Brúarsmiðir bjóða upp á:
-
Viðtöl með foreldrum og starfsfólki
-
Stuðning í foreldraviðtölum og á foreldrafundum
-
Aðstoð við umsóknir frístunda- og íþróttastarfs
-
Stuðning við notkun kerfa eins og Völu, Mentor og Abler
Contact us
Foreldrar og starfsfólk geta haft beint samband við brúarsmiði: bru@hafnarfjordur.is
Vinsamlega takið fram á hvaða tungumáli óskað er eftir stuðningi.
Við tölum: íslensku, ensku, pólsku, arabísku, spænsku og kúrdísku.