Multiculturalism
Hafnarfjörður welcomes people of foreign origin and encourages their increased participation.
Umsækjendur um alþjóðlega vernd
Hafnarfjörður leggur mikið upp úr því að taka vel á móti fólk og að það verði virkir þátttakendur gegnum vinnu og afþreyingu.
Heildstæð þjónusta fyrir flóttafólk
Í Hafnarfirði starfar sérstök stoðdeild fyrir flóttafólk. Flest þeirra eru fjölskyldur eða einstæðir foreldrar með börn. Hafnarfjörður leggur mikið upp úr því að taka vel á móti fólk og að það verði virkir þátttakendur gegnum vinnu og afþreyingu.
Þjónustan er heildstæð og fjölbreytt. Dæmi um verkefni eru:
- Aðstoð við leit að húsnæði.
- Financial assistance.
- Fræðsla um íslenskt samfélag.
- Íslenskunámskeið.
- Námskeið fyrir konur til að draga úr einangrun.
- Aðstoð með réttindamál varðandi skatta og bætur.
- Styðja við sameiningu fjölskyldna.
- Samstarf við skóla og leikskóla.
- Samstarf við íþróttafélög með afþreyingu.
- Náið samstarf við bókasöfnin með ýmsa viðburði.
- Barnaverndarmál sem kunna að koma upp.
- Sinna fylgdarlausum ungmennum sem hafa sótt um vernd.
Öllum einstaklingum er fylgt eftir í gegnum allt kerfið. Teymið sem vinnur í deildinni er með fjölbreyttan bakgrunn, meðal annars eru spænsku- og arabísku mælandi ráðgjafar.
Unnið er í góðu samstarfi við ýmis hagsmunasamtök, til dæmis Fjölmenningarsetur, UNICEF, Rauða Krossinn, Samtökin ‘78, WOMEN og fleiri.
Contact us
Hægt er að senda tölvupóst beint á deildina á netfangið hof@hafnarfjordur.is. Einnig er hægt að hringja í Þjónustuver í síma 585 5500 eða koma á Strandgötu 6, mán–fimmtudaga 8–16 og föstudaga 8–14.