Laugin og aðstaðan
Í Suðurbæjarlaug er 12,5 x 25 metra útisundlaug sem er samtengd við sérhannaða kennslulaug innandyra sem er einnig góð barnalaug. Úti eru þrír heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur í vaðlaug, tvær vatnsrennibrautir og tvö köld kör með mismunandi hitastigi. Vinsæll göngustígur liggur um sundlaugargarðinn.
Í kjallara Suðurbæjarlaugar eru búningsklefar og Gym heilsa líkamsrækt. Sérstakir búningsklefar með sánaklefum fyrir karla annars vegar og konur hins vegar eru við hlið hefðbundinna búningsklefa. Á útisvæði eru einnig búningsklefar undir berum himni.
Í lauginni er hefðbundið skólasund, sundæfingar SH, ungbarnasund, Meðgöngusundi Faðmur, Sundskóli Hörpu and vatnsleikfimi. Í húsnæði laugarinnar starfa þrír nuddarar.
Saga Suðurbæjarlaugar
Suðurbæjarlaug hefur notið mikilla vinsælda frá fyrsta degi, en hún var var formlega tekin í notkun þann 28. október 1989. Hönnuður sundlaugarinnar er Sigurþór Aðalsteinsson arkitekt.
Fjöldi fastagesta á öllum aldri nýtur þess allt árið um kring að mannvirkið var hannað í upphafi af vandvirkni og framsýni ásamt því að stór garður með mikið af sígrænum trjám umlykur sundlaugarsvæðið og veitir skjól allt árið um kring.
Opnunartímar á almennum frídögum
| Frídagar | Opnunartímar |
|---|---|
| Skírdagur | 08:00-17:00 |
| Föstudagurinn langi | 08:00-17:00 |
| Páskadagur | Closed |
| Annar í páskum | 08:00-17:00 |
| First of May | 08:00-17:00 |
| Verkalýðsdagurinn | Closed |
| Uppstigningardagur | 08:00-17:00 |
| Hvítasunnudagur | 08:00-17:00 |
| Annar í hvítasunnu | 08:00-17:00 |
| Þjóðhátíðardagurinn | Closed |
| Frídagur verslunarmanna | 08:00-21:00 |
| Þorláksmessa | 06:30-17:00 |
| Aðfangadagur jóla | 06:30-13:00 |
| Jóladagur | Closed |
| Annar í jólum | 08:00-17:00 |
| Gamlársdagur | 06:30-13.00 |
| Nýársdagur | Closed |
Swimming pools
| Price list | Kr. |
|---|---|
| One child's meal (ages 0–17) | Free |
| One in four older people (aged 67 and over) | Free |
| One dose for adults (18–66 years) | 1,250 kr. |
| Swimwear or towel hire | 940 kr. |
| Swimwear and towel hire | 1,450 kr. |
| Stamp card (valid for 2 years) | |
| Adult 10-point swimming card | 5,200 kr. |
| Adult 30-point swimming card | 14,000 kr. |
| 6-month card | |
| Adult swimming pass | 20,500 kr. |
| Annual pass | |
| Adult annual pass | 36,400 kr. |
| Rent | |
| Pool hire for groups per hour, including one staff member. Minimum 4 hours. | 9,000 kr. |