15 employees receive recognition for 25 years of service
Fimmtán starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar fagna 25 ára starfsafmæli í ár. Samanlagt eru þetta 375 ár í skólastarfi hér í bæ. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa kennt börnum og ungmennum í bænum okkar, allt frá fyrstu leikskólaárunum til framhaldsnáms í tónlist.
375 ár fyrir okkur Hafnfirðinga
Fimmtán starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar fagna 25 ára starfsafmæli í ár. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa kennt börnum og ungmennum í bænum okkar, allt frá fyrstu leikskólaárunum til framhaldsnáms í tónlist. Samanlagt eru þetta 375 ár í skólastarfi í Hafnarfirði.
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri bauð hópnum til kaffisamsætis í liðinni viku og öll fimmtán mættu til að fagna tímamótunum saman. Hvert og eitt fékk viðurkenningu og 75.000 króna inneign á Hafnarfjarðarkortið. Þetta er 11. árið í röð sem bærinn veitir starfsfólki viðurkenningu fyrir 25 ára starf.
Hlý orð og frábær stund
Hlý orð fylgdu viðurkenningunum og lýsingarnar á starfsfólkinu gefa góða mynd af því hvað skiptir máli í skóladeginum. Já, heyra mátti hvernig starfsfólkið hefur markað sér stöðu meðal samstarfsmanna með ilmandi súrdeigsbrauði, lúmskum húmor og verndarvæng.
Og hver hlutu viðurkenninguna í ár? Fáum smá úrdrátt úr ummælunum um þau :
- Arnþór Ragnarsson, grunnskólakennari í Lækjaskóla „Á þessum 25 árum hefur Arnþór fylgt fjölmörgum nemendum í gegnum skólagönguna og upplifað ýmsar breytingar á skólastarfinu. Með langri starfsreynslu sinni býr hann yfir góðri þekkingu á skólanum og sögu hans.“
- Birna Dís Bjarnadóttir, deildarstjóri í Víðistaðaskóla „Hún setur nemendur alltaf í fyrsta sæti í sínum störfum og gerir allt sem hún getur til að börnunum líði vel þannig að þau geti vaxið og dafnað á sínum forsendum. Það ættu allir að hafa eina Birnu Dís með sér í liði.“
- Edda Guðmundsdóttir, umsjónarkennari í Hvaleyrarskóla „Edda er áhugamanneskja um súrdeigsbakstur og reglulega eða óreglulega mætir hún með ilmandi brauðhleif á kaffistofuna og býður samstarfsfólki sínu að smakka.“
- Eygló Sif Halldórsdóttir, leikskólastjóri í Tjarnarási „Að baki þessum 25 árum eru ótal stundir í daglegu skólastarfi, samskipti við börn og fjölskyldur þeirra að ógleymdu öllu samferðafólkinu á ólíkum vinnustöðum. Við færum Eygló hjartans þakkir fyrir framlag hennar til skólastarfs í Hafnarfirði og 25 ára samfylgd.“
- Flóki Árnason, umsjónarkennari í Öldutúnsskóla „Hann er einstaklega rólegur og yfirvegaður. Hann er fylginn sér og lúmskur húmorinn er aldrei langt undan.“
- Helga Aðalheiður Jónsdóttir, tónlistarkennari „Það er mikill fengur að hafa Helgu Aðalheiði sem kennara við skólann. […] Hún er mjög natin við nemendur, alltaf yfirveguð og fagleg í alla staði.“
- Hjördís Björg Pálmadóttir, deildarstjóri í leikskólanum Álfabergi „Það er ekki of sögum sagt að börnum og foreldrum þyki vænt um Hjördísi sína. Hún er öflugur leiðtogi sem hvetur samstarfsfólk áfram og gefur hverjum og einum tækifæri til að njóta styrkleika sinna.“
- Hrönn Ásgeirsdóttir, grunnskólakennari í Áslandsskóla „Sem umsjónarkennari og textílkennari hefur hún kennt börnum að treysta eigin hæfileikum, rækta sköpunargáfuna og finna gleðina í vel unnu verki.“
- Jenný Berglind Rúnarsdóttir, grunnskólakennari í Áslandsskóla
- „Sem enskukennari hefur hún opnað fyrir þeim heim tungumáls, menningar og nýrra tækifæra með metnaði, sköpunargleði og trú á getu hvers og eins.“
- Jón Björgvinsson, slagverkskennari við Tónlistarskólann „Jón er jákvæður húmoristi og hefur fjörlega og góða nærveru meðal starfsmanna og nemenda.“
- Kristín Hrund Smáradóttir, sérkennari í Víðistaðaskóla
- „Hún lætur lítið fyrir sér fara en er alltaf til staðar fyrir nemendur og samstarfsfólk og 100% áreiðanleg.“
- Lena Karen Sveinsdóttir, deildarstjóri í Öldutúnsskóla „Eins og hún segir sjálf, með bros á vör, þá „kemur hún bara með góðar hugmyndir“! Með léttri lund sinni, góðum húmor og ósérhlífni sinni gerir hún skólastarfið bæði betra og skemmtilegra.“
- Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri í Stekkjarási „Hún hefur gegnt öllum stöðum innan leikskólanna á þessum 25 árum, verið nemi og leikskólastjóri og allt þar á milli.“
- Rósa Lyng Svavarsdóttir, umsjónarkennari í Áslandsskóla „Sem stærðfræðikennari hefur hún ekki aðeins kennt tölur og reikniaðferðir heldur einnig eflt sjálfstraust, þrautseigju og trú nemenda á eigin getu.“
- Stefanía Ólafsdóttir, sérkennari í Víðistaðaskóla „Hún þekkir nöfn nánast allra barna sem hún hefur haft undir sínum verndarvæng og hefur það oft komið sér vel að leita í hennar viskubrunn.“
Hafnarfjarðarbær óskar þeim öllum innilega til hamingju með starfsafmælið. Kærar þakkir fyrir allt sem þið hafið kennt börnunum okkar á þessum 25 árum!