70-year-old smokehouse now a community centre
Í gömlu skreiðahúsi baka til í Íshúsinu við Strandgötu eru spennandi hlutir að gerast en þar opnaði Ægir 220 nýverið. Heilsubærinn Hafnarfjörður, í samstarfi við Svefn Yoga í Lífsgæðasetri St. Jó, bjóða áhugasömum í Yoga Nidra – endurnærandi djúpslökun – og öðruvísi og einstaka upplifun á þessum nýja og hráa stað við hafið.
Gamalt hús fær nýtt hlutverk
Í gömlu skreiðahúsi baka til í Íshúsinu við Strandgötu eru spennandi hlutir að gerast. Skreiðahúsið var byggt árið 1954 sem geymsla fyrir fisk og veiðarfæri en fær nú líkt og aðrir hlutar þessa gamla húss nýtt hlutverk og dásamlegt umhverfi smábátahafnarinnar spillir ekki fyrir. Það eru Ægir brugghús og Íshús Hafnarfjarðar sem standa saman að rekstrinum og skemmtilegheit munu ráða ríkjum í Ægi 220 sem opinn er alla daga fram að jólum frá kl. 17-22 og meira og lengur í takti við skipulagða viðburði í húsinu. Ægir 220 er hvorutveggja samkomuhús á hafnarsvæðinu fyrir Hafnfirðinga og nærsveitunga og einstakur veislu- og viðburðasalur til útleigu.
Heilsubærinn býður í Yoga Nidra í Ægir 220
Heilsubærinn Hafnarfjörður, í samstarfi við Svefn Yoga í Lífsgæðasetri St. Jó, bjóða áhugasömum í Yoga Nidra – endurnærandi djúpslökun – og öðruvísi og einstaka upplifun á nýjum stað við hafið. Þegar hafa um 50 manns skráð sig til leiks á miðvikudag kl. 19:30 og líklegt að húsfyllir verði. Aðgangur er ókeypis og bæði aðdáendur og þau sem aldrei hafa prófað Yoga Nidra sérstaklega hvött til að skrá sig, mæta og njóta og öll hvött til að koma vel klædd til slökunarstundarinnar með viðeigandi búnað; dýnu, kodda og teppi. Þetta framtak heilsubæjarins Hafnarfjarðar er liður í heilsueflingu Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar og talar í takt við þá heilsustefnu sem sveitarfélagið mótaði 2016. Eitt af þremur yfirmarkmiðum heilsustefnunnar er að finna leiðir og lausir til að efla vellíðan íbúa og reynir heilsubærinn markvisst að bjóða upp á fjölbreytta heilsutengda viðburði allt árið um kring, nú á aðventunni og það í samstarfi við ólíka aðila. Yoga Nidra er leidd djúpslökun og sýna rannsóknir meðal annars að 45 mínútur í Yoga Nidra jafngildi 4 klukkustundum af svefni auk þess sem rannsóknir, bæði á Íslandi og erlendis, sýna gildi Nidra fyrir þá sem eru að takast á við streitu, álag, svefnerfiðleika, kvíða eða þunglyndi. Iðkendur liggja á dýnu í algerri slökun og eru leiddir áfram skref fyrir skref af Yoga Nidra kennara. Líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir. Þessi nærandi stund fer fram, eins og áður segir, í Ægi 220, nýjum og hráum samkomusal sem búið er að opna í 70 ára gömlu skreiðahúsi á hafnarsvæðinu. Það stefnir því allt í öðruvísi og einstaka upplifun við hafið.
Hafnarfjörður's Christmas Magazine 2023
This coverage is part of the content in Hafnarfjörður's Christmas Magazine 2023. The Christmas Magazine has the sole and true purpose of promoting the Christmas town of Hafnarfjörður to all interested parties, to visitors and passers-by, and to shine a light on the warmth and diversity that resides with the people and businesses of the Christmas town of Hafnarfjörður. The Hafnarfjörður Christmas Magazine is published in the same week that the Christmas Village opens each year, with 72,500 copies distributed. The Christmas magazine is intended to introduce the Christmas town of Hafnarfjörður to all interested parties, visitors and passers-by, and to highlight the warmth and diversity found among the people and businesses of Hafnarfjörður.
The Christmas supplement is available at Fjarðarkaup, Firði Shopping Centre, the City of Hafnarfjörður's customer service, Hafnarfjörður Library, Hafnarborg, the Hafnarfjörður Folk Museum and at the town's swimming pools.

