Hafnarfjörður Car Park Fund
Hlutverk Bílastæðasjóðs Hafnarfjarðar er að tryggja að íbúar og gestir bæjarins komist leiðar sinnar á sem áreiðanlegastan og öruggastan máta, án þess að verða fyrir truflun frá ökutækjum sem ekki er lagt í samræmi við umferðarlög. Bílastæðasjóðurinn er í eigu og umsjón Hafnarfjarðarbæjar.
Stöðuverðir sjá um eftirlit og leggja á stöðvunarbrotagjöld þegar á við. Til að byrja með verða aðvörunarmiðar settir á rúður bíla sem lagt er ólöglega, til að gefa íbúum og gestum bæjarins tækifæri á að venjast breytingum. Þegar þekking og reynsla er komin í verkið, verður sektað.
Þjónustan er í þágu bæjarbúa og fetar bærinn í fótspor Kópavogsbæjar og Seltjarnarnesbæjar, sem reka bílastæðasjóði eingöngu til að sinna eftirliti með stöðubrotum.
Umhverfis og framkvæmdarráð Hafnarfjarðar sér um daglegan rekstur sjóðsins og framkvæmdir á vegum hans. Fjármálasvið bæjarins sér um innheimtu gjalda, afgreiðir andmæli við aukastöðugjöld og stöðubrotagjöld og ræður stöðumælaverði.
Lesa nánar um samþykkt um Bílastæðasjóð Hafnarfjarðar here.
Stöðvunarbrotagjöld eru sameiginlegt heiti yfir aukastöðugjöld og stöðubrotsgjöld.
- Aukastöðugjald: Gjald sem lagt er á ökutæki þar sem ekki hefur verið greitt fyrir afnot bílastæðis á gjaldskyldu svæði eða greitt hefur verið fyrir of skamman tíma. Er í daglegu tali kallað stöðumælasekt, en verður til að byrja með ekki innheimt í Hafnarfirði.
- Stöðubrotsgjald: Gjald sem lagt er á ökutæki vegna ólöglegra lagninga; stöðvað eða lagt undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar aðstæður sem eiga heima undir 109. gr. í umferðarlögum. (Hlekkur í feitletraða orð: 77/2019: Umferðarlög | Lög | Alþingi)
- Stöðubrotsgjald – bílastæði hreyfihamlaðra: Gjaldið fyrir að leggja í bílastæði hreyfihamlaðra án þess að gildu stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða sé framvísað.
Aðvörun/sekt er lögð á ökutæki sem er stöðvað eða lagt við eftirfarandi merki/aðstæður:
- Bannað að stöðva.
- Bannað að leggja.
- Bannað að leggja á svæði.
- Stöðvað/lagt á gangbraut eða innan 5 metra frá henni.
- Stöðvað/lagt á vegamótum eða innan 5 metra frá næstu brún akbrautar á þvervegi.
- Stöðvað/lagt á/við biðstöð hópbifreiða innan 15 metra frá merki.
- Stöðvað/lagt á gangstétt, göngustíg, umferðareyju eða aðra svipaða staði.
- Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir leigubifreið, vörubifreið eða hópbifreið.
- Stöðvað/lagt á móti akstursstefnu.
- Stöðvað/lagt í merktu stæði ætluðu fólksbifreiðum.
- Stöðvað/lagt í merkt stæði ætluðu lögreglu eða sjúkrabifreið.
- Lagt við vatnshana slökkviliðs.
- Brot sbr. d- og e- lið 1. mgr. 109. gr.
- Brot á reglum um notkun stöðureita (aukastöðugjald).
- Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir ökutæki fatlaðs fólks.
- Þar sem akbraut er skipt í akreinar með óbrotinni mið- eða deililínu milli akreina eða svo nálægt slíkri línu að torveldi akstur inn á rétta akrein.
- Ekki má stöðva ökutæki eða leggja: á merktu stæði ætluðu bifreið til rafhleðslu.
- Ekki má leggja ökutæki: að hluta eða í heild fyrir framan innkeyrslu að húsi eða lóð.
Here má nálgast handbók Vegagerðarinnar um umferðarmerkin.
Here er hægt að senda inn beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun um álagningu aðvörunar/sektar á ökutæki. Beiðni um ástæðu fyrir þeirri ákvörðun skal berast innan 14 daga frá því að aðvörun/sekt var lögð á ökutækið. Beiðninni verður svarað innan 14 daga frá því að hún barst.
(Setja inn upplýsingar/hlekk, hvert á að senda þessa fyrirspurn, tölvupóstfang).
Beiðni um endurskoðun
Here er hægt að senda inn beiðni um endurskoðun ákvörðunar um álagningu, innan 28 daga frá dagsetningu álagningar. Almennur afgreiðslutími er ein til tvær vikur.
- Here má lesa nánar um umferðarlög.
- Here má lesa nánar um reglugerðir, sem og umferðarmerkin.
- Here má lesa nánar um notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða.
- Here má lesa nánar um Stjórnsýslulög.
- Here má nálgast lög um meðferð einkamála.
- Here má nálgast gjaldskrá Hafnarfjarðar vegna stöðubrota.
Bendum einnig á gagnlegar upplýsingar á vef Samgöngustofu Here.
Álagning stöðvunarbrotagjalds miðast við skráðan eiganda/umráðamann samkvæmt ökutækjaskrá og er Bílastæðasjóði Hafnarfjarðar óheimilt að færa kröfu á milli aðila. Aðrir en skráðir eigendur/umráðamenn geta þó greitt álagningu í bönkum, sparisjóðum og úr heimabanka.
Krafa stofnast á augabragði í banka viðkomandi eiganda/umráðamanns þegar gjald er lagt á ökutæki. Hægt er að greiða kröfuna um leið og hún berst í gegnum banka, sparisjóð eða netbanka viðkomandi aðila.
- Í heimabanka eiganda/umráðamanns ökutækis má finna gjaldið undir liðnum „ógreiddar kröfur eða ógreiddir reikningar“. Sé annar en eigandi eða umráðamaður að greiða gjaldið þarf viðkomandi að slá kröfunúmer seðilsins inn, en það er gert með því að velja „Greiðslur“ og síðan „Greiðsluseðill“. Athugið að ekki er hægt að millifæra inn á reikning Bílastæðasjóðs Hafnarfjarðar heldur þarf að greiða greiðsluseðilinn.
- Að gefnu tilefni er bent á að „Kennitala greiðanda“ í netbönkum vísar til kennitölu þess sem skráður er fyrir gjaldinu, í þessu tilviki er það kennitala eiganda/umráðamanns ökutækis, en ekki þess sem er að greiða gjaldið.
Brot: Stöðubrotsgjald – stöðvað undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánar tilteknar aðstæður sbr. 110. gr. umferðarlaga. (Hlekkur, feitletraða orð:
Upphæð: 10.000 krónur
- Ef greitt er 14 dögum eftir álagningu: 15.000 krónur
- Ef greitt er 28 dögum eftir álagningu: 20.000 krónur
Brot: Lagt í bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða
Upphæð: 20.000 krónur
- Ef greitt er 14 dögum eftir álagningu: 30.000 krónur
- Ef greitt er 28 dögum eftir álagningu: 40.000 krónur
Here má sjá gjaldskrá Bílastæðasjóðs Hafnarfjarðar í heild sinni.