Árlegt barnakóramót í Víðistaðakirkju á laugardag

News

Barnakóramót Hafnarfjarðar verður haldið laugardaginn 21. mars í Víðistaðakirkju. Mótið er tvískipt í yngri og eldri þátttakendur. Þau yngri kl. 12.30 og eldri kl. 16.30.

Barnakórar í Hafnarfirði

Kórbörn í Hafnarfirði hittast, kynnast, æfa saman og halda tónleika á Barnakóramóti Hafnarfjarðar sem verður haldið laugardaginn 21. mars í Víðistaðakirkju. Mótið er tvískipt í yngri og eldri þátttakendur.

Kórarnir sem koma fram eru:

  • Barna- og Unglingakórar Hafnarfjarðarkirkju
  • Barna- og unglingakórar Víðistaðakirkju
  • Yngri og eldri kórar Öldutúnsskóla
  • Kór Setbersskóla

Tónleikar yngri kóra hefjast kl. 12:30. Tónleikar eldir kóra hefjast kl. 16:30.

Stjórnendur eru: Brynhildur Auðbjargardóttir, Guðný Alma Haraldsdóttir, Helga Sigríður Kolbeins og María Gunnarsdóttir. Píanisti mótsins er Erla Rut Káradóttir.

Tónleikarnir eru fyrirtaks fjölskylduskemmtun, allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Aðgangur er ókeypis.

Suggestion portal