120 leiðtogar útskrifaðir úr leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar  

News

Alls hafa nú 120 stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar lokið námi í leiðtogaskóla bæjarins en síðasti hópurinn útskrifaðist við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í vikunni. Þar með hafa flestir stjórnendur sveitarfélagsins farið í gegnum námið frá því að það hófst haustið 2024. Markmið leiðtogaskólans eru skýr: að efla árangursmiðaða stjórnunarhætti og styðja við menningu sem endurspeglar einkunnarorð Hafnarfjarðarbæjar – hlýlega, áreiðanlega og snjalla þjónustu.

Skýr markmið og mælanlegur árangur

Kraftmiklir og meðvitaðir leiðtogar  

Fyrstu 30 leiðtogarnir útskrifuðust í nóvember 2024 og síðan hafa hópar útskrifast tvisvar á ári. Framvegis verður hann haldinn árlega og ætlaður nýjum stjórnendum og þeim sem stefna að stjórnendahlutverki innan Hafnarfjarðarbæjar. Leiðtogaskólinn er átta vikna nám þar sem áhersla er lögð á hagnýta og fjölbreytta fræðslu. Kennslan nær meðal annars til mannauðsmála, fjármála, innkaupa, stjórnsýslu og samskipta. Þátttakendur öðlast jafnframt ný verkfæri til að takast á við ólíkar áskoranir í starfi og efla sig sem leiðtoga. Við útskriftina afhenti bæjarstjóri, Valdimar Víðisson, þátttakendum viðurkenningarskjöl ásamt blómum og súkkulaði og óskaði þeim til hamingju. Í ávarpi sínu lagði bæjarstjóri áherslu á mikilvægi leiðtogaskólans í þróun vinnustaðarins:

„Stofnun leiðtogaskólans er liður í því að Hafnarfjarðarbær verði enn eftirsóknarverðari vinnustaður sem samanstendur af öflugu og ánægðu starfsfólki. Markmiðið er að skapa menningu árangursmiðaðrar stjórnunar og efla leiðtogahæfni stjórnenda. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að byggja upp jákvæðan starfsanda og auka vellíðan í starfi.“ Hann benti jafnframt á að árangurinn sé þegar farinn að skila sér: „Við sjáum skýrt í niðurstöðum kannana að árangur er að aukast milli ára – ánægja starfsfólks eykst, veikindi minnka og ánægja íbúa vex. Leiðtogaskólinn er mikilvægur hlekkur í þeirri vegferð. Það eru forréttindi að tilheyra öflugum hópi starfsfólks sem vinnur hjá Hafnarfjarðarbæ.“

Valdefling og framtíðarsýn

Leiðtogaskólinn er mikilvægur liður í því að styrkja Hafnarfjarðarbæ sem eftirsóknarverðan vinnustað, með öflugu leiðtogateymi og ánægðu starfsfólki í samræmi við mannauðsstefnu bæjarins. Fyrirlesarar koma bæði úr atvinnulífinu og úr röðum starfsfólks bæjarins. Ljóst er að markviss uppbygging í leiðtogaþróun skilar sér í sterkari starfsemi og betri þjónustu – og að öflugir stjórnendur gera góðan bæ enn betri.

Suggestion portal