Saga og menning lifna við í sundlaugunum

News

Í tilefni þess að íslensk sundlaugamenning hefur verið skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar sett upp nýjar sögusýningar í sundlaugum bæjarins.

 

Þrjár nýjar sögusýningar í sundlaugum bæjarins

Í tilefni þess að íslensk sundlaugamenning hefur verið skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar sett upp nýjar sögusýningar í sundlaugum bæjarins.

Vettvangur jafnræðis

Sýningarnar eru staðsettar í öllum þremur sundlaugum Hafnarfjarðar og varpa ljósi á þessa merku viðurkenningu, sögu lauganna og þróun sundlaugamenningar í bænum. Þar er meðal annars dregið fram hvernig sundlaugar hafa verið vettvangur jafnræðis – þar sem allir eru jafnir í sundfötunum – og hvernig menningin hefur þróast og lifað með hverri kynslóð.

Lifandi hluti af daglegu lífi fólks

Íslensk sundlaugamenning er einstök að því leyti að hún er lifandi hluti af daglegu lífi fólks; staður fyrir hreyfingu, samveru og samtal. Í Hafnarfirði hafa sundlaugar um langt skeið gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu og eru órjúfanlegur hluti af lífi bæjarbúa. „Það er afar ánægjulegt að sjá þessa mikilvægu viðurkenningu endurspeglast með lifandi hætti í okkar eigin nærumhverfi. Sundlaugarnar eru ekki aðeins staður fyrir hreyfingu heldur líka vettvangur samfélags og samtals þar sem ólíkar kynslóðir mætast. Með þessum sýningum er sagan gerð sýnileg og aðgengileg öllum,“ segir Heiðrún Eva Konráðsdóttir sérfræðingur á safninu.

Markmið sýninganna er að auka vitund um menningarlegt gildi sundlauganna og draga fram þá einstöku hefð sem íslensk sundlaugamenning er – hefð sem heldur áfram að þróast og sameina fólk á hverjum degi.

Komdu í heimsókn á Byggðasafn Hafnarfjarðar 

Suggestion portal