Sunnudaginn 12. apríl kl. 13-15 bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem búnir verða til draumafangarar, undir leiðsögn listamannanna Mariönu Samarska and Anne Rombach. Tungumál smiðjunnar eru íslenska, úkraínska, enska og þýska.

Komið og takið þátt í skapandi og róandi listasmiðju þar sem við búum til einstaka draumafangara úr náttúrulegum og fjölbreyttum efnivið. Allt efni verður á staðnum en þátttakendur eru hvattir til að taka með sér hluti úr eigin safni – svo sem fjaðrir, efni eða fundna hluti – sem hægt er að flétta inn í verkið og gera það enn persónulegra.

Hver draumafangari ber með sér eitthvað villt – ekki aðeins til skrauts heldur til verndar, leiðsagnar og innblásturs. Látum anda og slæma drauma líða hjá…

Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og er opin öllum aldurshópum. Engrar fyrri kunnáttu í listsköpun er krafist en börn skulu vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.

In my opinion er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og samtakanna GETU sem með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi leitast við að stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.

Suggestion portal