Verkfærin eru hendurnar, augun, orðin og nærveran

News

Í málefnum fatlaðs fólks í Hafnarfirði hefur frá árinu 2017 verið unnið út frá hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn og hafa starfsstöðvar haft hana að leiðarljósi. Allt starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í þessum geira sækir grunnnámskeið í fræðunum. Guðrún Halldórsdóttir, forstöðukona skammtímadvalarinnar Svöluhrauni 19, vildi læra meira og sótti námskeið á Akureyri og hefur nú réttindi til að leiðbeina fræðin fyrir öðrum.

Þjónandi leiðsögn er leiðarljósið

Í málefnum fatlaðs fólks í Hafnarfirði hefur frá árinu 2017 verið unnið út frá hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn og hafa starfsstöðvar haft hana að leiðarljósi. Allt starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í þessum geira sækir grunnnámskeið í fræðunum. Guðrún Halldórsdóttir, forstöðukona skammtímadvalarinnar Svöluhrauni 19, vildi læra meira og sótti námskeið á Akureyri og hefur nú réttindi til að leiðbeina fræðin fyrir öðrum.

„Þetta byrjaði eiginlega þannig að ég sótti árlega alþjóðlega ráðstefnu um þjónandi leiðsögn, sem haldin var í Portúgal árið 2022, til að efla fræðin. Mig langaði að gera meira og vita meira. Þá hafði ekki verið svona leiðbeinandanámskeið á Íslandi síðan árið 2016. Þegar ég sá þetta auglýst í ár hjá SímEy stökk ég á það,“ segir Guðrún glöð í bragði. Kennararnir komu frá fyrirtæki í Kanada sem eru leiðandi í þessari námsleið í heiminum og kenndu þátttakendum að vera leiðbeinendur, auk þess að veita þeim aðgang að stórum leiðbeiningapakka.

Lærði ungbarnasundkennslu

Guðrún er í grunninn með BE gráðu í uppeldis- og menntunarfræði og viðbótardiplómu í djáknafræðum og fötlunarfræðum. Að auki er hún í meistaranámi í forystu- og mannauðsstjórnun. „Ég er í grunninn mjög hrifnæm og elska að grípa alls kyns tækifæri til aukinnar þekkingar. Sem dæmi lærði ég ungbarnasundkennslu“, Svöluhraun var heimili fyrir fatlað fólk en var breytt í skammtímadvöl árið 2024. „Besta við það að starfa við þetta er að samfélagið hér er mjög gott. Hér starfar mjög þéttur og góður hópur sem heldur utan um allt að 18 skjólstæðinga, fjóra í senn í fjórum herbergjum.“ Guðrún hefur búið í Hafnarfirði síðan 2016, starfað hér síðan 2018 og segist hafa í tímans rás kynnst fólki sem tileinki sér þjónandi leiðsögn og þegar það sé notað gerist svo margt fallegt. „Maður horfir inn á við, hvað maður getur gert betur og hvernig maður hugsar sér að gera hlutina í framtíðinni. Við vorum 17 í náminu og það varð til sérstök vinátta til í hópnum – sem kom víða að á landinu. Við verðum áfram í samtali við kennara námskeiðsins til ráðagerðar, því næstu skref eru að þýða námsefnið yfir á íslensku og samræma hugtök.“

„Þetta verður að lífsstíl“

Hver og einn sem iðki þetta hafi síðan áhrif á aðra í kringum sig og verði þannig fordæmi og fyrirmynd. „Þegar ég kynntist þessu upprunalega sá ég að þetta verður að lífsstíl; að mæta alltaf af mildi í aðstæður er mikilvægt og gott. Það er líka hægt að yfirfæra þetta á starfshópa eins og hér. Við vinnum saman og mætumst í þessum anda til að upplifa mikilvægt öryggi og traust.“ Guðrún útskýrir þjónandi leiðsögn enn dýpra: „Grunnurinn er að einstaklingurinn sem við vinnum með upplifi sig öruggan, sé metinn að verðleikum, finni væntumþykju og sé þátttakandi. Sem dæmi þá setjum ekki fram boð og bönn heldur er byggt á trausti og virðingu. Það sem mér finnst best er að ef þú iðkar þetta í vinnunni, þá gerir þú það ósjálfrátt heima líka. Þetta nær yfir allt líf manns.“
Hún vill meina að í grunninn séum við öll góðar manneskjur sem vilji vel. Með þeirri þekkingu sem þjónandi leiðsögn bjóði upp á mikilvægar leiðir til að styðja sig í að vera góðar manneskjur og vinna fallega saman. „Verkfærin eru hendurnar okkar, augun, orðin og nærveran. Í nútímasamfélagi getur verið erfitt að vera nærandi, nota hendurnar og orðin fallega og hlýlegt augnaráð. Við erum að þjónusta fólk sem getur mismikið tjáð sig og því er mikilvægt að við lesum í hegðun og líðan,“ segir Guðrún að lokum.

Suggestion portal