Skýrsla um framtíðarnotkun Víðistaðatúns
Null
Nýlega lauk starfshópur um framtíðarnotkun Víðistaðatúns störfum og skilaði af sér skýrslu um þau fjölmörgu tækifæri sem búa í Víðistaðatúnssvæðinu. Í skýrslunni er framkvæmdaáætlun til þriggja ára.
Meðal helstu tillagna má nefna:
- koma upp fleiri leiktækjum
- setja upp grillaðstöðu fyrir hópa og fjölga þar bekkjum og borðum
- afmarka svæði fyrir golf/mínígolf sem stýrt verður frá Skátaheimilinu
- lýsa upp sleðabrekkuna neðan við kirkjuna á veturna
Huga þarf að því að halda ákveðnum opnum svæðum óbreyttum til að nýta megi túnið til ýmissa viðburða og ef þörf verður á því að stækka tjaldsvæðið. Þá er lagt til að skátarnir fái leyfi fyrir að setja upp „skátaþrautabraut“ sem næst Skátaheimilinu.
Taka í gegn skóginn sem þarna er, setja göngustíga með kurli, sígrænan gróður og koma fyrir bekkjum
Flestar tillögur hópsins komu fram á íbúafundi sem fram fór í vor.
Hér má sjá skýrsluna