Summer jobs for 17 and over
Hafnarfjarðarbær leitar eftir duglegum og öflugum einstaklingum til starfa í sumar. Til umsóknar eru störf flokkstjóra, leiðbeinenda og aðstoðarleiðbeinenda á íþrótta- og leikjanámskeiðum og í skólagörðum, störf í umhverfis- og garðyrkjuflokkum. Rafrænn umsóknarfrestur til 24. mars.
Hafnarfjarðarbær leitar eftir duglegum og öflugum einstaklingum til starfa í sumar. Til umsóknar eru störf flokkstjóra, leiðbeinenda og aðstoðarleiðbeinenda á íþrótta- og leikjanámskeiðum og í skólagörðum, störf í umhverfis- og garðyrkjuflokkum. Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi eigi lögheimili í Hafnarfirði og eru laun samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og viðkomandi stéttarfélags.
Lágmarksaldur umsækjenda í eftirfarandi störf er 21 ár (fæddir 1996):
- Flokksstjórar í Vinnuskóla
- Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum
- Leiðbeinendur í skólagörðum
Aldur umsækjenda í eftirfarandi störf 18-20 ára (fæddir 1997-1999):
- Garðyrkju- og umhverfisflokka
Aldur umsækjenda í eftirfarandi störf er 17-20 ára (1997-2000):
- Aðstoðarleiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum
Sótt er um sumarstörf rafrænt hér – sjá neðst
Umsóknarfrestur í störf er 24. mars. Ekki er tekið á móti umsóknum eftir þann tíma. Fyrirspurnir má senda á netfangið: vinnuskoli@hafnarfjordur.is