Students' communication skills in Hafnarfjörður strengthened

News

The Municipality of Hafnarfjörður recently signed an agreement with the training company KVAN, which aims to enhance students' communication skills.

Hafnarfjarðarbær skrifaði
nýverið undir samning við þjálfunarfyrirtæki KVAN sem miðar að því að efla
samskiptahæfni nemenda. Í þeim tilgangi fá grunnskólakennarar í 5. eða 6.
bekkur fræðslu á námskeiði sem gengur undir heitinu Verkfærakistan en
það hófst núna í byrjun mánaðar. KVAN  stendur
fyrir kærleik, vinátta, alúð og nám og hefur fyrirtækið
unnið í mörg ár að fjölbreyttum verkefnum
sem snúa að þjálfun, fræðslu og menntun ungs fólks, fagaðila, stjórnenda og
starfsmanna fyrirtækja.

Markmið bæjaryfirvalda með
því að bjóða upp á þessa fræðslu fyrir alla grunnskóla er að fjölga þeim
verkfærum sem kennurum og skólum standa til boða til að vinna með samskipti í
grunnskólastarfinu til að bæta líðan og styrkja félagsfærni nemenda. Byrjað er
á einum árgangi til tveimur árgöngum eftir skólum og þetta fyrsti veturinn sem
fræðslan á sér stað. Ráðgert er að fræðslan haldi síðan áfram í sama árgangi
framvegis.

Nánar um verkfærakistuna: Verkfærakistan er hagnýtt námskeið fyrir kennara og annað
fagfólk. Markmið námskeiðsins er að veita
þátttakendum verkfæri til að takast á við einstaklinga sem eiga í félagslegum
vanda annars vegar og hópa sem glíma við samskiptavanda hins vegar. Þá
nýtist efni námskeiðsins einnig til að efla bekkjaranda og jákvæð
samskipti. Vandinn í hópunum getur verið
fólginn í samskiptaerfiðleikum, ljótu orðfari, lélegum bekkjaranda, einelti,
ágreiningi innan hópsins, lélegum vinnufrið og svo mætti áfram telja.

Vandi
einstaklinga getur verið vinaleysi, klaufagangur í samskiptum, höfnun, einelti,
hegðunarvandi og önnur félagsleg vandamál. Námskeiðið samanstendur af sex
skiptum, tvær og hálfa klukkustund í senn. Inn á milli tímanna prófa
þátttakendur aðferðirnar í sínum hópi og fá stuðning og handleiðslu í næsta
tíma á eftir. Dæmi um aðferðir og verkfæri eru vináttuþjálfun,
jákvæð leiðtogaþjálfun, afleiðingaaðferðin, vinna með gerendur, samvinnuleikir
og samvinnuverkefni, félagsfærniþjálfun og hópefli. 

Myndin: Frá undirritun
samnings við KVAN. Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri fræðsluþjónustu
Hafnarfjarðar og fulltrúar KVAN, Jón Halldórsson og Vanda Sigurgeirsdóttir.

Suggestion portal