Agi í rekstri, frekari uppbygging og bætt þjónusta
Rekstur
Hafnarfjarðarbæjar hefur gengið vel síðustu ár. Fjárhagsáætlunin gerir ráð
fyrir áframhaldandi jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 985 milljónir króna á
árinu 2019, Skuldaviðmið
heldur áfram að lækka og áætlað
veltufé frá rekstri eykst.
Frumvarp að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið
2019 og 4 ára áætlun 2019-2022 verður lögð fram í bæjarstjórn til fyrri umræðu
miðvikudaginn 14. nóvember. Síðari umræða um fjárhagsáætlun verður í desember.
Álagningarstuðull
fasteignagjalda lækkaður og komið til móts við barnafjölskyldur
Í fjárhagsáætlun
ársins 2019 verður álagningarstuðull fasteignaskatts lækkaður og eru það
viðbrögð við mikilli hækkun á reiknuðu fasteignamati í Hafnarfirði milli ára.
Þannig lækkar álagningarstuðull fasteignaskatts af atvinnuhúsnæði úr 1,57% í
1,40% og fasteignaskattur af íbúðahúsnæði úr 0,28% í 0,26%. Útsvarsprósentan
verður áfram 14,48% en hún var lækkuð úr 14,52% árið 2017. Systkinaafsláttur á
leikskólagjöldum eykst og þriðja systkini í grunnskóla fær frítt fæðisgjald.
Rekstur Hafnarfjarðarbæjar hefur gengið vel síðustu ár.
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir áframhaldandi jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp
á 985 milljónir króna á árinu 2019, en hún er áætluð 798 milljónir króna á
árinu 2018. Skuldaviðmið heldur áfram að lækka og verður samkvæmt áætluninni um
120% í árslok 2019. Áætlað veltufé frá rekstri eykst um 474 milljónir króna frá
áætlun 2018. Áætlað er að fjárfesta fyrir 4,5 milljarða króna á árinu 2019. „Þessi fjárhagsáætlun staðfestir hve fjárhagur Hafnarfjarðarbæjar hefur
styrkst undanfarin ár og hve mikilvægt er að haldið verði áfram á braut agaðrar
fjármálastjórnunar. Skuldaviðmið bæjarins lækkar áfram samhliða því sem
þjónusta sveitarfélagsins er efld. Þá lækkum við álagningarstuðul
fasteignagjalda til að koma til móts við mikla hækkum fasteignamats á bæði íbúða-
og atvinnuhúsnæði í bænum“ says Rósa Guðbjartsdóttir, Mayor of Hafnarfjörður.
Velferð, forvarnir og snemmtæk
þjónusta
Í fjárhagsáætlun
ársins 2019 er boðuð áframhaldandi uppbygging í bænum og aukin þjónusta við
íbúa á öllum sviðum bæjarfélagsins. Félagslegum íbúðum verður áfram fjölgað markvisst
and keyptar verða íbúðir fyrir um 500 milljónir
króna á ári næstu fjögur ár. Auknum fjármunum verður varið í að halda áfram að
þróa og festa nýja snemmtæka þjónustu í sessi en unnið hefur verið að
verkefninu allt árið 2018. Verkefnið snýr að því að finna leiðir til að bæta
félags-, skóla- og geðheilbrigðisþjónustu við leik- og grunnskólabörn bæjarins
og fjölskyldur þeirra. Stöðugildum sálfræðinga til að sinna leik- og
grunnskólum var fjölgað á árinu og eru nú um 800 nemendur á hvert stöðugildi en
voru um 1200 áður. Markmiðið er að sinna
forvarnarhlutverki enn frekar, halda námskeið og ganga á biðlista. Dvalargjald
á leikskóla mun áfram haldast óbreytt sjötta árið í röð. Aukinn
systkinaafsláttur er af dvalargjaldi í leikskólum, afsláttur fyrir annað systkini fer úr 50% í 75% og þriðja systkini úr 75% í 100%. Tekjutengdur
afsláttur leikskólagjalda verður aukinn. Afsláttarprósenta neðra þreps fer úr
40% í 75% og afsláttarprósenta efra þreps fer úr 20%
í 50%. Systkinaafslætti í fæðisgjöldum nemenda í grunnskóla verður komið á,
þriðja systkini fær frítt. Unnið verður áfram að verkefni um fjölþætta
heilsurækt 65 ára og eldri í Hafnarfirði. Haldið verður áfram að þróa og bæta
þjónustu við eldri borgara í heimahúsum svo sem með nýtingu velferðartækni, auk
þess sem greind verður þörf fyrir aukið þjónustustig með viðurkenndu mælitæki.