Fornubúðir 5 og Hamranes. Breyting á aðal- og deiliskipulagi svæða
Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna Hamraness og Suðurhafnar. Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar – Fornubúðir 5
Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 19.9.2018 að endurauglýsa framlagða tillögu, dags. 8.8.2018/lagf. 13.9.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025
Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkti á fundi sínum þann 19.9.2018 framlagða tillögu, dags. 08.08.2018/lagf. 14.9.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin felst í að ákvæði um Suðurhöfn, hafnarsvæði (landnotkunarflokk H), verði ítarlegri.
Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar, Hafnarfirði – Fornubúðir 5
Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkti á fundi sínum þann 19.9.2018 framlagða tillögu, dags. 10.08.2018/lagf. 13.09.2018, að breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði vegna lóðarinnar við Fornubúðir 5. Jafnframt var samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010. Í deiliskipulagsbreytingunni felst orðalagsbreyting í greinargerð til samræmis við breytingu á greinargerð aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 og eru aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagsbreytingin auglýstar samhliða, sbr. 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 23.10. – 04.12.2018. Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 04.12. 2018.