Styrkir til hljóðvistar 2019
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur.
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Styrkir eru veittir til endurbóta á hljóðeinangrun glugga á þeim hliðum húss þar sem hljóðstig reiknast 65 dB(A) eða hærra.
Við úthlutun styrkja hafa þeir forgang sem búa við verstar aðstæður. Umsækjendur skulu í umsókn sinni greina frá fyrirhuguð aðgerðum og metur umhverfis- og skipulagsþjónusta hvort þær eru fullnægjandi en það er forsenda styrkveitingar.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
Frekari upplýsingar fást í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 eða í síma 585-5500.