Hundreds of children took part in the cross-country run.
Árlegt Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram á sumardaginn fyrsta, 25. apríl á Víðistaðatúni. Keppendur voru um fjögurhundruð í 12 flokkum, fjölmennast var í yngstu flokkunum.
Árlegt Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram á sumardaginn fyrsta, 25. apríl á Víðistaðatúni. Keppendur voru um fjögurhundruð í 12 flokkum, fjölmennast var í yngstu flokkunum. Keppendur voru frá öllum íþróttafélögum bæjarins og voru margir efnilegir hlauparar að stíga sín fyrstu skref þarna.
Birta Þöll Sveinbjörnsdóttir var fyrst kvenna í mark í flokki 15 ára og eldri og Hörður Halldórsson var fyrstur í flokki 15 ára og eldri karla. Veðrið var mjög gott á meðan hlaupinu stóð. Frjálsíþróttadeild FH sá um framkvæmd hlaupsins. Verðlaun voru gefin af Hafnarfjarðarbæ og fengu allir keppendur verðlaunapening og fyrstu keppendur í mark í hverjum flokki fengu verðlaunabikara. Keppni var hörð og góð í öllum flokkum.
Fyrstu í hverjum flokki voru eftirtalin:
Konur 15 ára og eldri
- Birta Þöll Sveinbjörnsdóttir
- Unnur Þorláksdóttir
Karlar 15 ára og eldri.
- Hörður Halldórsson
- Atli Steindórsson
- Halldór Harðarson
Piltar 13-14 ára
- Birgir Bóas Davíðsson
- Andri Steinn Ingvarsson
- Svavar Ísak Ólason
Stúlkur 13-14 ára
- Selma Sól Sigurjónsdóttir
- Sara Kristín Lýðsdóttir
- Elfa Karen Magnúsdóttir
Piltar 11-12 ára
- Kári Björn N Hauksson
- Benjamín Bæring Þórsson
- Jóhann Darri Harðarson
Stúlkur 11-12 ára
- Rut Sigurðardóttir
- Hildur Sara Magnúsdóttir
- Elísa Björt Ágústsdóttir
Piltar 9-10 ára
- Kristinn Víglundsson
- Jón Viktor Hauksson
- Emil Gauti Hilmisson
Stúlkur 9-10 ára
- Hafrún Birna Helgadóttir
- Ingibjörg Magnúsdóttir
- Unnur Thorarensen Skúladóttir
Hnokkar 7-8 ára
- Róbert Nikulás Róbertsson
- Hilmir Ingvi Heimisson
- Máni Steinn Ágústsson
Hnátur 7-8 ára
- Þórdís Lilja Jónsdóttir
- Ylfa Hrund Heiðdal
- Rakel Lea Jónsdóttir
Hnokkar 6 ára og yngri
- Jósef Þór Bonnah
- Magnús Páll Egilsson
- Dagur Logi Ingvarsson
Hnátur 6 ára og yngri
- Auður Alis
- Elísabet María Fróðadóttir
- Sara Elena Kospenda