Kaldárselsvegur – closures due to roadworks on 6 May
Stefnt er að því að malbika milli hringtorga á Kaldárselsvegi, frá Sörlatorgi að nýju hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð. Klettahlíðin verður einnig lokuð auk vegbútar milli nýju hringtorganna. Frá nýju hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð að nýju hringtorgi við Elliðavatnsveg.
Vegna komandi malbikunarframkvæmda við Kaldárselsveg er ekki hjá því komist að röskun verði á umferð um svæðið vegna lokana á vegköflum sem merktir eru á yfirlitsmynd. Röskun á umferð vegna lokana verður um eftirtaldar götur en þó á mismunandi tímum:
- Kaldárselsvegur
- Elliðavatnsvegur
- Brekkuás
- Rocky slope
Önnur lokun – mánudaginn 6. maí
Stefnt er að því að malbika milli hringtorga á Kaldárselsvegi, frá Sörlatorgi að nýju hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð. Klettahlíðin verður einnig lokuð auk vegbútar milli nýju hringtorganna. Frá nýju hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð að nýju hringtorgi við Elliðavatnsveg. Það hringtorg verður þó ekki lokað. Merkingar verða settar upp á svæðinu. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umferð milli kl. 18 og 19 að kvöldi mánudagsins 6. maí.
Sjá mynd…


Framkvæmdasvæðið verður ekki lokað í heild sinni á sama tíma en nánari upplýsingar um áfangaskiptingar lokana verða auglýstar þegar nær dregur framkvæmdartíma.
Fyrirfram þakkir fyrir tillitssemina.