Consultation meetings on the West End's planning work
Á samráðsfundi vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar var farið yfir hugtakið Verndarsvæði í byggð og gerð grein fyrir þeirri fornleifa- og húsaskráningu sem gerð hefur verið á svæðinu.
Á fyrri samráðsfundi af tveimur vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar þann 5. mars var farið yfir hugtakið Verndarsvæði í byggð, hvað í því felst og hvernig það á við um Vesturbæinn. Jafnframt var gerð grein fyrir þeirri fornleifa- og húsaskráningu sem gerð hefur verið á svæðinu. Hér er hægt að sækja glærukynningu frá fundinum:
- Vesturbær Hafnarfjarðar – Verndarsvæði í byggð – glærukynning frá samráðsfundi vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar frá Gláma·Kím. arkitektar
Á seinni fundi átti að kynna hugmyndavinnu fyrir íbúum og gefa þeim tækifæri á að ræða þær hugmyndir sem þegar liggja fyrir. Ákveðið var að fresta fundinum en ný tímasetning er 31. mars kl. 17 í beinu streymi á vef og Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar.