Four stood out for their innovation in primary schools
Fjórir nemendur Víðistaðaskóla voru meðal þeirra sigursælu í nýsköpunarkeppni grunnskólanna nú í sumarbyrjun. Hugmyndir þeirra skáru fram úr ríflega 500 tillögum á landsvísu.
Nýsköpun ungu kynslóðarinnar
Nemendur í Víðisstaðaskóla voru sigursælir í nýsköpunarkeppni grunnskólanna nú við skólalok og fengu bæði samfélagsverðlaun og aðalverðlaun. Halla Tómasdóttir forseti afhenti verðlaunin.
Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir, í 6. bekk í Víðistaðaskóla, hlutu aðalverðlaun NKG 2026 fyrir hjálm á hlaupahól. Þær hönnuðu öryggiskerfi fyrir leiguhlaupahjól þar sem hjálmur er tengdur hjólinu og hjólið fer ekki af stað nema hjálmurinn sé notaður.
Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir með forsetanum.
Guðlaug Sóley Jokumsen Bergman og Elvar Ólafsson einnig í 6. bekk fengu samfélagsbikar NKG fyrir Saltblásarann sem auðveldar að dreifa salti í hálku. Þau komu líka annarri hugmynd í úrslit, en það var Náttúruappið sem hvetur fólk til að tína upp rusl.
Guðlaug Sóley Jokumsen Bergman og Elvar Ólafsson með forsetanum.Alls bárust rúmlega 500 hugmyndir hvaðanæva af landinu frá nemendum í 5. – 7. bekk. Af þeim voru 25 hugmyndir valdar til úrslita og tóku alls 38 nemendur þátt í vinnustofum og lokaviðburðum NKG 2026.
Laugardaginn 30. maí fór fram glæsilegt lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2026 á Sögutorgi í Sögu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þar var sköpunarkrafti, hugrekki og hugmyndaflugi barna víðs vegar að af landinu fagnað.
Nemendur sem komust í úrslit stigu á svið, kynntu hugmyndir sínar, fluttu stuttar ræður og deildu reynslu sinni af verkefnunum. Einnig var boðið upp á skemmtiatriði sem nemendur sjálfir tóku þátt í og settu persónulegan og hlýjan svip á hátíðina.
Einn af hápunktum dagsins var verðlaunaafhending þar sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Nýsköpunarkeppni grunnskólanna, afhenti aðalverðlaun og heiðraði þau verkefni sem þóttu skara fram úr. Á lokahófinu voru einnig afhent VILJI – hvatningarverðlaun nýsköpunarkennara grunnskólanna 2026.
Kæru nemendur – Innilega til hamingju með flottan árangur.
- Sjáðu heildarúrslitin here
Myndir/NKG