Museums and cultural institutions open today
Tilslakanir yfirvalda frá og með 4. maí heimila að nýju opnun í Hafnarborg, Byggðasafni Hafnarfjarðar og á Bókasafni Hafnarfjarðar. Við tekur hefðbundinn afgreiðslutími á öllum stöðum. 50 gestir geta verið á söfnunum samtímis og gilda áfram viðmið um 2 metra reglu, þrif á sameiginlegum snertiflötum og almennar sóttvarnir. Allir þeir sem eru í sóttkví, með flensulík einkenni eða eru slappir eru vinsamlega beðnir um að bíða með heimsókn þar til heilsan er orðin 100%.
Frá og með miðnætti 23. mars hafa söfn og menningarstofnanir
í Hafnarfirði, líkt og í öðrum sveitarfélögum, verið lokaðar. Tilslakanir
yfirvalda frá og með 4. maí heimila að nýju opnun í Hafnarborg, Byggðasafni
Hafnarfjarðar og á Bókasafni Hafnarfjarðar. Við tekur hefðbundinn afgreiðslutími
á öllum stöðum. 50 gestir geta verið á söfnunum samtímis og gilda áfram viðmið um
2 metra reglu, þrif á sameiginlegum snertiflötum og almennar sóttvarnir. Allir
þeir sem eru í sóttkví, með flensulík einkenni eða eru slappir eru vinsamlega beðnir
um að bíða með heimsókn þar til heilsan er orðin 100%. Við erum jú öll
almannavarnir áfram.
Hafnarfjörður Library
opnar kl. 10 – heimsækja vef bókasafns
- Öll skil munu fara fram við
sjálfsafgreiðsluvélina. Utan opnunartíma má skila í skilalúgu - Skilafrestur allra safngagna hefur verið
framlengdur til 14. maí svo allir hafi nægan tíma til að skila. Engar sektir
reiknuðust á meðan á samkomubanni stóð - Búið er að framlengja gildistíma
bókasafnsskírteina (sem voru í gildi) um 6 vikur, sem nemur herta
samkomubanninu
Hafnarborg opnar kl.
12 – heimsækja vef Hafnarborgar
- Opið verður eins og venjulega, alla daga, nema
þriðjudaga, kl. 12–17, og aðgangur er ókeypis. - Í Hafnarborg stendur nú yfir sýningin Þögult
vor, eftir Herttu Kiiski, Katrínu Elvarsdóttur og Lilju Birgisdóttur, í
sýningarstjórn Daríu Sólar Andrews. Þar kalla þær fram hlýjar tilfinningar til
náttúrunnar og vekja okkur til umhugsunar um þau áhrif sem skaðvænlegar
neysluvenjur okkar hafa á umhverfið. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð
Íslands.
Museum of Local History
Hafnarfjarðar – heimsækja vef Byggðasafns
- Í maí er opið í Pakkhúsi laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17. Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu, fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning
- Sumaropnun á öllum söfnum Byggðasafns
Hafnarfjarðar hefst 1. júní og stendur til og með 31. ágúst. Þá verður opið
alla daga vikunnar frá kl. 11-17
Hlökkum til að taka á móti ykkur í raunheimum en þökkum á sama tíma fyrir góða skemmtun á netinu síðustu vikur og daga!