Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar samþykkt
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag miðvikudaginn 16. desember. Fjárhagsáætlun nær til næsta árs auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2022-2024.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar
var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
í dag miðvikudaginn 16. desember. Fjárhagsáætlun nær til næsta árs auk þriggja
ára áætlunar fyrir árin 2022-2024. Áætlaður rekstrarhalli A og B hluta
sveitarfélagsins nemur 1.221 milljón króna á árinu 2021. Gert er ráð fyrir að
veltufé frá rekstri verði 5,5% af heildartekjum eða 1,7 milljarðar króna.
Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2021:
- Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta neikvæð um
1.221 milljón króna. - Skuldaviðmið 114% í árslok 2021.
- Áætlað veltufé frá rekstri A- og B-hluta 1,7
milljarðar króna eða 5,5% af heildartekjum. - Útsvarsprósenta óbreytt eða 14,48%.
- Heildarálagning fasteignagjalda lækkar með lægri
fasteignasköttum og vatns- og fráveitugjöldum til að koma til móts við hækkun
fasteignamats. - Almennt er gert ráð fyrir að gjaldskrá 2021 haldist óbreytt eða hækki í takt við vísitölu.
- Áætlun gerir ráð fyrir lóðarsölu að andvirði 500
milljónir króna. - Áætlaðar fjárfestingar nema samtals 4,3
milljörðum króna. - Kaup á félagslegum íbúðum nema 500 milljónum
króna.
Áhersla lögð á lágmörkun áhrifa Covid19 á íbúa
Eins og önnur sveitarfélög hefur Hafnarfjarðarbær þurft að bregðast við
efnahagslegum og samfélagslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins, sem
dregið hefur úr útsvarstekjum og samhliða aukið félagsleg útgjöld. Lögð hefur
verið áhersla á að lágmarka áhrif faraldursins á íbúa Hafnarfjarðar og koma í
veg fyrir að efnahagsáfallið leggi klafa á bæjarfélagið til frambúðar. Það
hefur verið gert með samræmdum aðgerðum sem falið hafa í sér markvissa
hagræðingu, hóflegar lántökur og eignasölu.
Meðfylgjandi eru
fjárhagsáætlun og fylgigögn fjárhagsáætlunar 2021-2024: