Let's get to work – a new government jobs initiative
Með nýju atvinnuátaki stjórnvalda „Hefjum störf“ er stefnt að því að skapa allt að sjö þúsund tímabundin störf. Atvinnuátakið er unnið í samvinnu atvinnulífsins, opinberra stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka. Ráðgert er að verja um 4,5 til 5 milljörðum króna í átakið. Hafnarfjarðarbær vinnur að því þessa
Með nýju atvinnuátaki stjórnvalda „Hefjum störf“ er stefnt að því að skapa allt að sjö þúsund tímabundin störf. Atvinnuátakið er unnið í samvinnu atvinnulífsins, opinberra stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka. Ráðgert er að verja um 4,5 til 5 milljörðum króna í átakið. Hafnarfjarðarbær mun taka virkan þátt í þessu verkefni.
See the announcement on the website of the Cabinet Office.
Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Átakið á að gera litlum og meðalstórum fyrirtækjum auðveldara að ráða starfsmenn og búa sig þannig undir bjartari framtíð. Fyrirtæki sem hafa færri en 70 starfsmenn geta ráðið atvinnuleitendur sem hafa verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur með ríflegum stuðningi. Hverjum nýjum starfsmanni mun fylgja allt að 472 þúsund króna stuðningur á mánuði, auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði. Fyrirtæki geta ráðið eins marga starfsmenn og það þarf þangað til að heildarfjöldi starfsmanna hefur náð 70. Ráðningartímabilið er sex mánuðir, frá apríl til desember.
Fyrir stærri fyrirtæki
Þá geta fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum nýtt sér ráðningarstyrki sem auðvelda atvinnurekendum að ráða starfsfólk og fjölga atvinnutækifærum þeirra sem eru án atvinnu. Með ráðningarstyrk getur atvinnurekandi fengið fullar grunnatvinnuleysisbætur með hverjum atvinnuleitanda sem hefur verið án vinnu í 30 daga eða lengur í allt að sex mánuði með hverjum nýjum starfsmanni, eða 307.430 krónur á mánuði, auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð. Ekkert þak er á fjölda starfsmanna sem fyrirtæki geta ráðið með þessu úrræði.
Fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir
Til að koma til móts við þann hóp sem er við það að fullnýta bótarétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hefur ekki fengið atvinnu við lok bótatímabilsins verður farið í sérstakar aðgerðir til að aðstoða einstaklinga í þessum hópi við að komast aftur inn á vinnumarkað. Vinnumálastofnun mun greiða ráðningarstyrk í allt að sex mánuði, og er heimilt að lengja um aðra sex fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu, vegna ráðningar einstaklinga sem eru við það að ljúka bótarétti. Stofnuninni er heimilt að greiða ráðningarstyrki sem nema fullum launum samkvæmt kjarasamningum að hámarki 472.835.- krónur á mánuði auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð. Skilyrði er að ráðinn sé einstaklingur sem á sex mánuði eða minna eftir af bótarétti. Þá er sveitarfélögum einnig heimilt að ráða til sín einstaklinga sem fullnýttu bótarétt sinn innan atvinnuleysistryggingarkerfisins á tímabilinu 1. október. til 31. desember 2020.
Fyrir félagasamtök
Félagasamtök, sem rekin eru til almannaheilla og án hagnaðarsjónarmiða, er gert kleift að stofna til tímabundinna átaksverkefna í vor og sumar með ráðningarstyrk sem nemur fullum launum samkvæmt kjarasamningum að hámarki kr. 472.835 á mánuði sem er hámark tekjutengdra bóta auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð. Þá verður greitt 25% álag til þess að standa straum af kostnaði við verkefnin, svo sem við landvernd, viðhald göngustíga, landhreinsun, gróðursetningu, íþróttir og afþreyingu fyrir börn og unglinga og svo framvegis. Skilyrði fyrir ráðningarstyrk er að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur.