Örstyrkir til menningar og lista á aðventunni
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarmála á aðventunni.
Viltu taka þátt í að auðga jólaandann á aðventunni?
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarmála á aðventunni. Til þess að styðja við hafnfirskt listafólk og hafnfirska menningu verður hluta af fjármagni Jólaþorpsins í Hafnarfirði úthlutað til ýmissa verkefna sem fara fram á aðventunni 2021. Óskað er eftir hvers konar atriðum, upplifun og skemmtun sem auðgað geta jólastemningu í jólabænum á aðventunni. Mikilvægt er að verkefnin skírskoti til breiðs hóps fólks og margir fái að njóta.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2021
Skriflegar umsóknir um örstyrk skal senda á netfangið jolathorp@hafnarfjordur.is undir fyrirsögninni: Umsókn um örstyrk fyrir klukkan 23:59 mánudaginn 15. nóvember. Miðað er við að úthlutun verði lokið 26. nóvember.
Í umsókn þarf að koma fram: Nafn umsækjanda, kennitala, netfang, símanúmer, upplýsingar um atriði sem sótt er um styrk fyrir og einföld kostnaðaráætlun. Við úthlutun verður tekið mið af Regulations of the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður on grants for cultural activities. Best er að sameina umsókn í eitt PDF-skjal með öllum gögnum.
The Christmas Town of Hafnarfjörður
Jólaþorpið er bæjarviðburður sem kjarnar jólamenninguna í Hafnarfirði og er heimsókn í jólaþorpið, söfn, verslanir, kaffihús og veitingastaði mikilvægur og ómissandi hluti af jólaundirbúningi margra. Á ári hverju á aðventunni hverju kemur fram, í jólaþorpinu og víðar í Hafnarfirði, stór og fjölbreyttur hópur listafólks með hvers kyns atriði og nú er auglýst eftir skapandi og skemmtilegum einstaklingum og hópum sem búa yfir hugmyndum að pop-up viðburðum, sýningum og verkefnum sem eru til þess fallin að efla menningu og glæða mannlífið á í Hafnarfirði á aðventunni.