17. júní í Hafnarfirði
Þjóðhátíðarveisla sem teygir anga sína víða um bæinn. Komdu og fagnaðu þjóðhátíð með okkur heima í Hafnarfirði.
- 17 June in Hafnarfjörður
Celebrate Iceland‘s National Day with us here in Hafnarfjörður. Programme in English.
We offer a varied programme of events around the town.
- 17 czerwca w Hafnarfjörður
Przyjdź i świętuj z nami święto narodowe w
Hafnarfjörður.
Urozmaicone obchody w różnych częściach
miasta.
———————————————————
Komdu og fagnaðu þjóðhátíð með okkur heima í Hafnarfirði
Fjölbreytt dagskrá verður í boði víðsvegar um Hafnarfjörð. Þjóðhátíðardagurinn hefst með fánahyllingu á Hamrinum kl. 8 í boði Skátafélagsins Hraunbúa og lýkur með kvölddagskrá á Thorsplani en kvölddagskrá í hjarta Hafnarfjarðar á sjálfan þjóðhátíðardaginn snýr aftur í hátíðarhöldunum á 17. júní í ár. Fram koma ungir tónlistarmenn í bland við aðra reyndari.
Þjóðhátíðarveisla sem teygir anga sína víða um bæinn
Að vanda verður fjölbreytt dagskrá í boði í Hafnarfirði á 17. júní, þjóðhátíðarveisla sem teygir anga sína víða um bæinn. Skipulögð hátíðarhöld verða á Thorsplani og Hörðuvöllum. Á Strandgötunni verða sölubásar og hoppukastalar auk þess sem ungmenni úr skapandi sumarstörfum bæjarins verða á ferðinni um bæinn til að gleðja gesti og gangandi. Rjúkandi fargufa og sjósund verður í boði á Langeyrarmölum, þjóðbúningasamkoma í Flensborg og íbúar Austurgötu bjóða heim til hátíðar í götunni sinni. Á Víðistaðatúni verður Víkingahátíð sem stendur yfir dagana 15. – 19. júní.
Skrúðganga frá Flensborgarskóla
Í ár verður gengið frá Flensborgarskóla niður Hringbraut, eftir Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani. Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Skátafélagið Hraunbúar og víkingar leiða skrúðgönguna. Skrúðagangan mun hafa áhrif á umferð um svæðið á meðan henni stendur.
Flöggum fána á 17. júní
Við hvetjum íbúa og starfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði til að mála bæinn í fánalitum með því að skjóta upp fána á öllum mögulegum stöðum. Flöggum eða setjum upp fána í næsta glugga eða blómapott. Tökum öll þátt!
8:00 Fánar dregnir að húni og fánahylling á Hamrinum
Skátafélagið Hraunbúar flaggar víðsvegar um bæinn.
9:00-13:00 Sjósund við Langeyrarmalir
Sjósundsfélagið Urturnar leiðbeina bæjarbúum við sjósund. Fargufan rjúkandi og Sundhöll Hafnarfjarðar opin.
11:00 Þjóðbúningasamkoma í Flensborg
Annríki –
Þjóðbúningar og skart veitir aðstoð við að klæðast þjóðbúningum og hvetur
Hafnfirðinga til að taka fram þjóðbúninga allra landa. Þjóðbúningamyndataka
við Hafnarborg kl. 14:30.
13:00 Skrúðganga frá Flensborgarskóla
Gengið niður Hringbraut,
eftir Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani. Lúðrasveit Hafnarfjarðar,
Skátafélagið Hraunbúar og víkingar leiða skrúðgönguna.
Hafnarfjörður Library
- Kl. 13:00 Skautun fjallkonu Hafnarfjarðar
Sagnfræðingurinn og kjólameistarinn Hildur Rosenkjær, oft kennd við Annríki,
heldur stutta fræðslu um sögu og merkingu búningsins á meðan að fjallkonan
er undirbúin fyrir ávarp sitt. - Kl. 14:00 Nikkan auðvitað á staðnum og barnabókahöfundurinn Hrafnhildur Emma Björnsdóttir les smásöguna „Þjóðhátíð í Grýluhelli“ kl. 14:00.
- Kl. 16:00 Hugljúfir tónleikar
Tónlistarmennirnir Rebekka og Ásgeir og halda hugljúfa tónleika fyrir þá sem
vilja slaka aðeins á eftir frábæru dagskrána á Thorsplani í notalegri stemmingu
á bókasafninu.
13:00-17:00 Íþróttahúsið Strandgötu
Hafnarfjörður Badminton Club
verður með opið hús þar sem hægt verður að prófa borðtennis og badminton.
Einnig verður þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina. Þá verður hægt að kaupa
rjúkandi heitar vöfflur og kaffi til styrktar liði BH sem er á leið í
Evrópukeppni félagsliða í badminton í Póllandi í lok mánaðarins.
13:30 -16:30 Hátíðarhöld á
Thorsplani
Hátíðarhöldin í miðbæ Hafnarfjarðar hefjast með formlegri
dagskrá og skemmtiatriðum á Thorsplani.
- Kl. 13:45 Karlakórinn
Þrestir - Kl. 13:50 Ávarp
fjallkonu - kl. 14:00 Setning
hátíðarhalda – Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri - Kl. 14:10 Sýning
frá Listdansskólanum - Kl. 14:25 Gaflaraleikhúsið með atriði úr leikritinu Langelstur að eilífu
- Kl. 14:50 Víkingabardagi
– Rimmugýgur - Kl. 15:10 Tónaflóð
– Ævintýraleg söngskemmtun úr vinsælum teiknimyndum. Töfrandi raddanir,
litríkir búningar og lög sem allir þekkja. Nostalgía fyrir fullorðna og
gleðisprengja fyrir börnin! Tilvalin fjölskylduskemmtun - Kl. 15:40 Immi ananas og Guffi banani úr Ávaxtakörfunni segja söguna af ávaxtakörfunni og syngja uppáhalds lögin sín úr sýningunni
- Kl. 16:00 Diskótekið
Dísa
Kynnar: Samfélagsmiðlastjörnunar Finnbogi og Melkorka
13:30-16:30 Hörðuvellir
- Hringekja
– frábært sextán manna tívolítæki fyrir allan aldur! Ókeypis aðgangur! - Hoppukastalar
- Andlitsmálun barnanna sér um fría andlitsmálun frá kl. 13:30-15:30
- Snædrottning
og fjallagarpur verða á ferð um hátíðarsvæðið og heilsa upp á gesti - Blöðrudýr
á meðan birgðir endast - Sölubásar
og matarvagnar: Flatbakan og Dons Donuts
13:30 -16:30 Austurgötuhátíð
Íbúar Austurgötu bjóða Hafnfirðinga og nærsveitarmenn velkomna og verður margt skemmtilegt og spennandi í boði líkt og fyrri ár. Sem dæmi má nefna:
- Fríkirkjan í Hafnarfirði – Söngur og gleði
Fríkirkjukórinn syngur kl. 14 á horni Austurgötu og Linnetsstígs og gleður gesti. Í kjölfarið býður Fríkirkjubandið upp í dans. - Skiptibókamarkaður Kiljuhjals
Í boði Kolbrúnar Maríu Másdóttur og Láru Debarúnu Árnadóttur, stjórnenda hlaðvarpsþáttanna Kiljuhjals sem hefja göngu sína í sumar á vegum Skapandi Sumarstarfa í Hafnarfirði þar sem þær hvetja fólk til að lesa, endurnýta og deila bókum. - Götulistafólk Skapandi sumarstarfa spila vel valin lög fyrir gesti og gangandi.
Magnús Trevenen gítarleikari verður á staðnum með gítarinn sinn og meðlimir strengjakvartettsins Óh Sú! undir stjórn víóluleikarans Úlfs Þórarinssonar ásamt fiðluleikaranum Sindra Kristinssyni, flakka um Austurgötuna með strengjahljóðfærin sín og spila fallega tóna fyrir gesti Austurgötuhátíðarinnar.
14:00 Menntasetrið við Lækinn
Lúðrasveit Hafnarfjarðar mun
spila leikandi létta sumartónlist.
14:00-15:00 Hafnarfjarðarkirkja
Hafnarfjarðarkirkja býður upp á hátíðardagskrá á opnu húsi þar sem Björn
Thoroddsen, gítarleikari og bæjarlistamaður Hafnarfjarðar, flytur íslenskar
dægurperlur, þjóðlög og margt fleira með sínum einstaka hætti. Með honum
leika þeir Jón Rafnsson á bassa og Guðmundur Sigurðsson á píanó og orgel.
11:00-17:00 Víðistaðatún
Víkingahátíðin í Hafnarfirði fer fram á Víðistaðatúni dagana 15.-19. júní og er aðgangur ókeypis. Yfir 200 víkingar leggja leið sína í Hafnarfjörð innan og utan landsteinanna. Dagskráin er fjölbreytt og mikið um að vera, þar má telja; bardagasýningu, handverksýningu, víkingaleiki, glímusýningu & kennslu, steinsmíði, jurtalitun, landnámshænur, víkingaskóla fyrir börn, fjölbreyttir sölubásar, bogfimikeppni, veitingar & veigar.
Auk þess verður hægt að prófa bæði bogfimi og axarkast gegn vægu gjaldi, allur ágóði rennur beint í Víkingahátíð í Hafnarfirði. Rimmugýgur býður ykkur velkomin á hátíðina sem er í senn 25. Víkingahátíðin í Hafnarfirði og upphaf 25. starfsárs Rimmugýgjar.
10:00-14:00 Brettafélag Hafnarfjarðar Flatahrauni
Opið hús frá 10:00-14:00 í hjólabrettaaðstöðunni á Flatahrauni 41. Hægt verður að koma og leika sér á hjólabrettum, BMX og hlaupahjólum. Aðgangur ókeypis!
11:00-17:00 Byggðasafn Hafnarfjarðar, opið í öllum húsum og ókeypis aðgangur
- Pakkhúsið, Vesturgötu 6, ný þemasýning um fyrsta hafnfirska safnarann,
sýning um sögu Hafnarfjarðar og leikfangasýning. - Kl. 14:30 og 15:30 Hljómsveitin TÆR leikur á Byggðasafnstorginu. TÆR er íslensk hljómsveit sem spilar huglúft kántrý-indí-rokk og hlýjar hjartarætur.
- Beggubúð, Kirkjuvegi 3b, verslunarminjasýning í
þjóðhátíðaranda. - Sívertsens-húsið, Vesturgötu 6, saga Bjarna Sívertsen og heimili
yfirstéttafjölskyldu frá upphafi 19. aldar. - Siggubær, Kirkjuvegur 10, nýuppgerður og endurnýjaður sem sýnishorn af
heimili alþýðufjölskyldu frá upphafi 20. aldar. - Bookless Bungalow, Vesturgötu 32, sýning um þá Booklessbræður og erlendu
útgerðina í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. - Strandstígurinn, ný sýning með völdum ljósmyndum eftir Önnu Jónsdóttur.
12:00-17:00 Hafnarborg
Boðið verður upp á sérstaka skemmtidagskrá yfir
daginn, auk þess sem gestir eru boðnir velkomnir á yfirstandandi sýningar
safnsins, Í undirdjúpum eigin vitundar, þar sem varpað er ljósi á feril listamannsins
Gunnars Arnar Gunnarssonar (1946-2008), og What’s Up, Ave Maria?, þar sem
Sigurður Ámundason sýnir ný og nýleg verk.
- Kl. 12:00 Blöðrulistamaður
Til að hefja hátíðarhöldin mun blöðrulistamaðurinn Jóhannes Hrefnuson Pálsson
taka á móti börnum, gestum og gangandi upp úr hádegi með blöðrufígúrum, ormum
og öðrum verum, innblásnum af myndheimi Gunnars Arnar Gunnarssonar, í tengslum
við yfirlitssýninguna Í undirdjúpum eigin vitundar.
- Kl. 14:00 Sýningarstjóraspjall
Boðið verður upp á sýningarstjóraspjall með Aldísi Arnardóttur, forstöðumanni
Hafnarborgar, um yfirlitssýninguna Í undirdjúpum eigin vitundar kl. 14, þar sem
hún mun segja frá ævi og starfi Gunnars Arnar Gunnarssonar en á sýningunni má
sjá verk sem spanna nærri fjögurra áratuga langan feril listamannsins. - Kl. 12:00-17:00 Þjóðbúningasýning
Líkt og fyrri ár mun Annríki halda sérstaka þjóðbúningasýningu í Apótekinu á
neðri hæð safnsins, þar sem sýndir verða þjóðbúningar karla og kvenna í gegnum
tíðina og leitast við að varpa ljósi á þróun þeirra, auk þess sem lögð verður
áhersla á prjónaðan fatnað á 18. og 19. öld, en sýningarnar hafa notið mikilla
vinsælda á hverju ári. - Kl. 14:30 Þjóðbúningamyndataka við Hafnarborg
Verið öll velkomin – aðgangur ókeypis, líkt og alla
daga ársins.
11:00-13:00 17. júní – fjölskylduhátíð Get together
Þjóðhátíðardeginum verður fagnað með því að baka íslenskar pönnukökur í Get together miðstöðinni okkar í Vonarhöfn – Hafnarfjarðarkirkju (gengið inn frá Suðurgötu).
Kíkið við og fáið ykkur kaffi og pönnukökur. Á staðnum verða einnig fánar og glaðningur fyrir börnin. Öll eru velkomin!
Get together er styðjandi vettvangur fyrir flóttamenn og hælisleitendur sem dvelja í Hafnarfirði. Að verkefninu standa sjálfboðaliðar ásamt kirkjunum í Hafnarfirði og Hafnarborg Menningarmiðstöð.
KL. 14-16 Bláljósaakstur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins ætlar í tilefni dagsins að aka um nokkrar götur sveitarfélagsins með blá ljós og íslenska fánann frá kl. 14-16. Því miður er ekki hægt að tímasetja nákvæmlega þar sem Slökkviliðið er á vaktinni eins og alltaf. Tökum vel á móti þeim, um að gera að fara út og fagna.
14:00 og 15:00 Hljómsveitin Enter name í Hellisgerði
Enter name er 1 árs gömul Hafnfirsk hljómsveit. Hún er sett saman af 5 fimmtán ára strákum sem hafa brennandi áhuga á tónlist og falla saman eins og góð bíómynd. Þeir tilheyra listhóp Hafnarfjarðar sem sér um að sýna kúnstir sínar og listir víðsvegar um Hafnarfjörð í sumar.
Útisvæði Hjarta Hafnarfjarðar við Bæjarbíó
- 13:00-17:00 Mótorhjóladagur með Harley Davidson klúbbnum.
Komið og skoðið mótorfákana og hittið eigendur sem sýna gripina.
- 19:00-23:00 Rokk&ról skemmtun
Plötusnúður spilar öll bestu rokklögin
Eyþór Ingi og Davíð Sigurgeirsson kl. 21:00
Rúnar Þór og hljómsveit enda með alvöru rokk í útitjaldinu til kl. 23:00
Hrafnista/Sólvangur
Sönghópurinn Á léttum nótum
heldur tónleika á Hrafnistu og Sólvangi
Strandgata, stræti og torg
- Teymt
undir börnum á hestum frá Hestamannafélaginu Sörla við endann á Austurgötunni
frá kl. 14 - Frjálsíþróttadeild
FH býður upp á frjálsíþróttabraut á gamla Kaupfélagsreitnum - Hoppukastalar
víðsvegar um hátíðarsvæðið - Matarvagnar Reykjavík Street Food við Thorsplan: Tasty, Grill of Thrones og Hungry Viking
- Óvæntar
uppákomur Listahóps Vinnuskóla Hafnarfjarðar
19:00-22:00 Tónlistarveisla á Thorsplani
Kvölddagskrá í hjarta Hafnarfjarðar á sjálfan þjóðhátíðardaginn snýr aftur í hátíðarhöldunum á 17. júní. Fram koma ungir tónlistarmenn í bland við aðra reyndari.
- Kl. 19:00 Ungir
listamenn hita upp - Kl. 20:00 Guðrún Árný
- Kl. 20:20 Klara
Elías - Kl. 20:40 Birnir
- Kl. 21:00 Flott
- Kl. 21:30 Friðrik Dór
Matarvagnar Reykjavík Street Food við Thorsplan: Tasty, Grill of Thrones, Hungry Viking, Flatbakan og Dons Donuts
Kynnir: Birna Rún Eiríksdóttir leikkona
20:30-23:00 ÞAU taka Pallett!Hljómsveitin ÞAU halda þjóðhátíðartónleika á Pallett í Hafnarfirði. Þar munu ÞAU leika lög af plötu sinni ,,ÞAU taka Vestfirði“ sem er komin út á öllum helstu streymisveitum. Um er að ræða frumsamin lög við ljóð eftir vestfirsk skáld. ÞAU eru Rakel Björk Björnsdóttir, söng- og leikkona, og Garðar Borgþórsson, tónlistarmaður. FRÍTT INN!
Samgöngur og umferðalokanir
Miðbærinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur:
- Strandgata við Lækjargötu
- Linnetsstígur við Fjarðargötu og Hverfisgötu 23
- Austurgata frá Linnetsstíg
- Mjósund við Austurgötu
- Tjarnabraut frá Arnarhrauni að Lækjarskóla
- Bílastæði fatlaðra við Linnetsstíg 1
Bæjarbúar eru hvattir til að leggja bílum löglega nálægt miðbænum, ganga eða taka strætó á viðurðarstæði. Bendum á fjölmörg bílastæði við smábátahöfnina, Lækjarskóla, Tækniskólann, Flensborg, Íþróttahúsið við Strandgötu og Víðistaðaskóla.
Skiljum hundana eftir heima
It should be noted that dogs are more comfortable at home than in crowds.
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ HUNDAR ERU EKKI LEYFÐIR Á VIÐBURÐARSTÖÐUM.
Þjóðhátíðarnefnd
Brynjar Þór Gestsson
Tinna Hallbergsdóttir
Steinn Jóhannsson
Framkvæmdanefnd
Geir Bjarnason
Tinna Dahl Christiansen
Stella Björg Kristinsdóttir
Margrét Gauja Magnúsdóttir
Jón Grétar Þórsson
Brynja Birgisdóttir
Dagskrá getur breyst án fyrirvara og viðburðir bæst við eða frestast.