Tilfinningafluga

ég spegla mig í vængjum þínum

tilfinningafluga

hann brotnar upp

í pastellitaðar minningar æskunnar

ég sker mig og rispa á brotum þínum

tilfinningafluga

blóðbornar tær

eru kunnuglegur myndheimur ævintýra

ég er andvaka í draumum þínum

tilfinningafluga

suð þitt er strengur

milli ókannaða hluta djúpsins

og efsta lagi himinhvolfsins

gríma mín er ljósbrot

tilfinningafluga

sem speglar sig í vængjum sínum

pastellitaðra minninga

María Rún Þrándardóttir er fædd árið 1995 í Reykjavík, býr þar og starfar. María hefur víðtækan bakgrunn í myndlist, en hún lauk BA námi í myndlist árið 2019 með áherslu á gjörninga og vídjólist. Sama ár lagði hún stund á starfsnám hjá Kristínu Gunnlaugsdóttur myndlistakonu, sem og starfsnám hjá KÍM á Feneyjatvíæringnum.

Árið 2022 hlaut hún MSc gráðu í Umhverfisbreytingum á Norðurslóðum frá Helsinki Háskóla þar sem hún samtvinnaði myndlist og umhverfisvísindi.Vorið 2026 lauk hún þar að auki diplóma í Listmálun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík.

Helstu fyrri einkasýningar Maríu eru Hverfandi í Kling og Bang 2020, Particles of Sensing í Veðurstofu Finnlands árið 2022 og Svört blúnda í Gróskusalnum Garðabæ 2023.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 9. júlí frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !

Curator: Elvar Gunnarsson

Other opening times:

 

Fös. 10. júlí 13:00 – 18:00

Lau. 11. júlí 13:00 -17:00

Sun. 12. júlí 14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is supported by the Culture and Tourism Committee.

Hafnarfjörður's due to the event

—————————–

Sentimental fly

I see myself reflected in your wings

sentimental fly

They split into

pastel coloured memories of childhood

I cut myself with your fragments

sentimental fly

bleeding toes

are familiar worlds of fairy tales

I lie awake within your dreams,

sentimental fly

your humming is a cord

between the unknown depths of the ocean

and the uppermost layers of heaven

My mask is a refraction

sentimental fly

reflected in its own wings

of pastel coloured memories

María Rún Þrándardóttir was born in 1995 in Reykjavík, where she lives and works. She has a broad background in the visual arts, completing a BA degree in Fine Art in 2019 with an emphasis on performance and video art.

That same year, she undertook apprenticeships with the artist Kristín Gunnlaugsdóttir and with the Icelandic Art Center at the Venice Biennale. In 2022, she received an MSc degree in Environmental Change in Higher Latitudes from the University of Helsinki, where she combined art and environmental science.

In the spring of 2026, she also completed a diploma in Painting from the Reykjavík School of Visual Arts. Selected solo exhibitions include Hverfandi at Kling & Bang in 2020, Particles of Sensing at the Finnish Meteorological Institute in 2022, and Svört blunda at Gróskusalurinn in Garðabær in 2023.

There will be a special exhibition opening on Thursday, July 9th from 18:00-21:00 and you are welcome!

Curator: Elvar Gunnarsson

Other opening hours

Fri 10th July 13:00 – 18:00

Sat 11th July 13:00 – 17:00

Sun 12st July 14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.

Suggestion portal