Stronger internal pillars in the digital world

News

The project Shake-free togetherness er í þróun í Hvaleyrarskóla. Kennarar og fagfólk innan skóla hafa tekið eftir því að sífellt fleiri unglingar glíma við kvíða, depurð, sjálfsgagnrýni og erfiða tengingu við tilfinningar sínar. Samhliða þessari þróun hefur ómarkviss skjánotkun aukist.

Kenna unglingum að efla tengingu við sjálf sig og aðra

Á síðustu árum hefur orðið mikil umræða um aukna vanlíðan meðal ungmenna, sérstaklega í tengslum við samfélagsmiðla, skjánotkun og stöðugt áreiti úr stafrænu umhverfi. Kennarar og fagfólk innan skóla hafa tekið eftir því að sífellt fleiri unglingar glíma við kvíða, depurð, sjálfsgagnrýni og erfiða tengingu við tilfinningar sínar. Samhliða þessari þróun hefur ómarkviss skjánotkun aukist. Verkefnið Shake-free togetherness er í þróun í Hvaleyrarskóla og þar eru það þau Haukur Þór Þorvarðarson sérkennari og meistaranemi í sálfræði og Eva Rós Gústavsdóttir, jógakennari og meistaranemi í klínískri sálfræði sem fara fyrir verkefninu.

Meiri núvitund, sjálfsmildi og samkennd

„Verkefnið byggir á þeirri hugmynd að mikilvægt sé að hjálpa ungmennum að þróa með sér meiri núvitund, sjálfsmildi og samkennd í eigin garð. Með því að efla hæfni þeirra til að þekkja eigin tilfinningar og mæta þeim af skilningi fremur en forðun er hægt að draga úr stjórnlítilli skjánotkun og stuðla að bættri líðan. Við viljum einnig með þessu grípa jarðarsett börn sem eru ekki með sterkt bakland því þau eru mikið í stafrænum heimi og þróa mörg með sér áhættuhegðun,“ segir Haukur og bætir við að verkefnið sæki meðal annars innblástur í kenningar og rannsóknir Paul Gilbert og Kristin Neff um self-compassion eða sjálfsmildi, þar sem lögð áhersla á að samkennd sé virk aðferð til góðra breytinga.

Markmið verkefnisins sé ekki að fjarlægja síma úr lífi ungmenna, enda eru þeir orðnir stór hluti af daglegu lífi og samskiptum. „Við leitumst frekar við að kenna unglingum að verða meðvitaðri um eigin hegðun og átta sig á því hvenær þeir grípa sjálfkrafa í símann vegna vanlíðunar eða óþægilegra tilfinninga. Oft eru þessar tilfinningar óskýrar og ungmenni hafa ekki orð eða verkfæri til að vinna með þær. Þá verður skroll á samfélagsmiðlum auðveld leið til að flýja augnablikið,“ segir Eva Rós. 

Meira tilfinningaþol og betri sjálfsskilningur

Í verkefninu er lögð áhersla á núvitundaræfingar, samkennd og sjálfsmildi sem leið til að efla seiglu og tilfinningastjórn. „Með því að kenna ungmennum að sitja með erfiðum tilfinningum í stað þess að forðast þær skapast aukið tilfinningaþol og betri sjálfsskilningur. Hugmyndin er að þau læri að taka eftir eigin líðan áður en þau leita sjálfvirkt í símann og geti þess í stað valið hegðun sem styður raunverulega við vellíðan þeirra, svo sem hreyfingu, skapandi verkefni, félagsleg tengsl eða hvíld,“ segir Eva Rós. 

Einnig verður í verkefninu rætt um áhrif samfélagsmiðla og stöðugs dópamín-áreitis á heilastarfsemi ungmenna. Endalaust skroll geti kallað fram skammvinna örvun án þess að skilja eftir raunverulega vellíðan eða uppfyllingu. „Þvert á móti getur slík hegðun aukið tómleikatilfinningu, skömm og vanmátt. Með verkefninu leitumst við því við að efla meðvitaðri og heilbrigðari tengingu ungmenna við sjálf sig, aðra og stafrænt umhverfi sitt,“ segir Haukur Þór. 

Skapa öruggt og hlýlegt rými til samræðu 

Verkefnið er ætlað unglingum í 8.–10. bekk og er markmiðið að skapa öruggt rými þar sem hægt er að ræða vanlíðan, sjálfsmynd og skjánotkun á opinn og fordómalausan hátt. Með aukinni sjálfsmildi og samkennd er vonast til að ungmenni þrói með sér sterkari innri stoðir, þekki eigin rödd og skapi betri tengsl við eigin þarfir og aukna getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs án þess að leita stöðugt í stafræna flótta. „Við munum, í samráði við þau, skapa fyrir þau hlýlegt rými og aðstæður og notum menntastyrkinn meðal annars til þess,“ segja þau að lokum og hlakka mikið að láta þetta rætast í haust.

In recent weeks and in the coming weeks, interviews with grantee from the Hafnarfjörður Education Fund be published on the media channels of the City of Hafnarfjörður. This gives residents and other interested parties the opportunity to gain a deeper insight into the excellent projects and creative school and leisure activities.

Suggestion portal