The voice of young people matters – the student councils came together

Child-friendly municipality News

110 fulltrúar nemendaráða grunnskóla Hafnarfjarðar komu saman á sameiginlegum fræðslu- og samverudegi í Kaplakrika á föstudag. Markmið dagsins var að efla nemendaráðin í sínu mikilvæga hlutverki, skapa vettvang fyrir ungmennin til að kynnast þvert á skóla.

Að hafa rödd og geta haft áhrif 

110 fulltrúar nemendaráðanna hittust í Kaplakrika á föstudag. Rætt var um hlutverk nemendaráða, rétt barna og ungmenna til þátttöku og mikilvægi þess að nemendaráð séu rödd allra nemenda skólans, ekki eingöngu þeirra sem sitja í ráðinu á fræðsludeginum.

Nemendur fengu jafnframt tækifæri til að velta fyrir sér hvernig þau geta sjálf haft áhrif á skólasamfélagið sitt og komið hugmyndum sínum og sjónarmiðum á framfæri.

Nemendaráðin unnu einnig verkefnið „Okkar reglur í vetur“, þar sem þau mótuðu sín eigin leiðarljós fyrir samstarfið fram undan. Horft var til þess hvernig þau:

  • vilja vinna saman
  • eiga góð samskipti
  • skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að taka þátt og láta rödd sína heyrast

Dagskráin var fjölbreytt og blandaði saman fræðslu, verkefnavinnu, samvinnu og hópefli.

Og hvað heyrðu þau?

  • Samfés fjallaði um raunverulega þátttöku ungmenna og hvað þarf til þess að þátttaka verði raunveruleg og merkingarbær.
  • Þá gaf Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála, ungmennunum innsýn í viðburðahald og hvernig góð hugmynd getur orðið að skemmtilegum viðburði.
  • Jóna Rán, forvarnarfulltrúi, stýrði jafnframt fjörugu hópefli þar sem reyndi á samvinnu, samskipti og lausnaleit. Ungmennaráð Hafnarfjarðar kynnti síðan sitt starf og hvernig ungmenni geta komið skoðunum sínum og hugmyndum áfram og haft áhrif á málefni sem þau varða.

„Dagurinn snerist ekki síst um að kynnast, tengjast og læra hvert af öðru,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags og með umsjón yfir Ungmennaráði Hafnarfjarðar.

„Með því að leiða saman fulltrúa nemendaráða úr skólum bæjarins skapast tækifæri til að deila hugmyndum og reynslu og byggja upp enn öflugra samstarf unglinga í Hafnarfirði,“ segir hún.

„Fræðsludagurinn fellur vel að áherslum Barnvæns sveitarfélags þar sem lögð er áhersla á að börn og ungmenni fái tækifæri til að tjá skoðanir sínar, taka virkan þátt og hafa raunveruleg áhrif á málefni sem snerta þau,“ segir hún.

Mikill kraftur var í hópnum og ljóst að nemendaráð Hafnarfjarðar eiga spennandi vetur fram undan.

Takk fyrir frábæran dag og takk fyrir þátttökuna, hugmyndirnar og orkuna. 

 

Suggestion portal