Börn koma í heiminn, alla daga, öllum stundum. Hjónin Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir hafa tekið saman sögur af slíkum augnablikum, og einbeitt sér að sjónarhóli feðra. Hvernig er að verða pabbi? Hvernig hafa mismunandi tímar, aldur, staðir, fæðingar áhrif á þetta allt – og hvað breytist? Sögunum söfnuðu þau í bók sem heitir Fæðingarsögur feðra. Hún inniheldur rúmlega 60 sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra. Bókin er afrakstur söfnunar á sögum frá feðrum sem hófst árið 2019.

Ísak verður hjá okkur með bókina, kynnir hana og bíður í spjall. Öll velkomin, feður, mæður og foreldrar jafnt.
Suggestion portal