Samfés is moving to Hafnarfjörður
Samfés hafa skotið rótum í gamla menntasetrinu við Lækinn. Þessi landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa verða þar minnst næstu tvö árin. Velkomin í fjörðin fagra.
Öflugt starf Samfés við Lækinn
„Við erum komin heim,“ sagði Valgeir Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Samfés, landssamtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, þegar hann ritaði undir leigusamning fyrir starfsemina við Hafnarfjarðarbæ. Samfés hóf starfsemi sína einmitt í Hafnarfirði fyrir rétt rúmum 40 árum. Þessi félagasamtök fyrir ungt fólk hafa komið sér fyrir í gamla Menntasetrinu við Lækinn og verða þar næstu tvö ár.
Árný Steindóra Steindórsdóttir, sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðarbæjar, segir að með samningnum skapist nálægð milli starfsemi Samfés og ungmennahússins, auk annars æskulýðs- og frístundastarfs bæjarins.
„Við sjáum tækifæri til samstarfs og samlegðar á því sviði,“ segir hún og óskar þeim til hamingju með nýju aðstöðuna.
Samfés stuðlar að fagþróun starfsfólks og styrkir þátttöku barna og ungmenna í félagsstarfi. Félagasamtökin munu nýta aðstöðuna í Nýsköpunarsetrinu fyrir daglegan rekstur, fundi, ráðstefnur og önnur verkefni sem samræmast hlutverki þeirra.
Valgeir lýsir því hvernig Samfés haldi viðburði fyrir öll ungmenni á landinu. „En einnig viðburði fyrir starfsfólk félagsmiðstöðva ungmenna og félagsmiðstöðva.“ Svo séu haldnir starfsdagar fyrir hlutastarfsfólk svo það læri á félagsmiðstöðvastarfið og grunngildi þess.
„Svo erum við í hagsmunabaráttu félagsmiðstöðva,“ segir Valgeir. Starfið sé öflugt og hann sjái fram á góðan tíma í þessu sögufræga og fallega húsi okkar við Lækinn.