Ævintýraleg fjölskyldusýning á Bókasafni Hafnarfjarðar, innblásin af íslenskum álfasögum, þar sem bækur lifna við, frumsamin tónlist ómar og hafið geymir dularfullt leyndarmál.

Ticket sales 

Sunnudagur 29. nóvember kl. 13:00 og 15:00 – Frumsýning
Sunnudagur 6. desember kl. 13:00 og 15:00
Sunnudagur 13. desember kl. 13:00 og 15:00
Sunnudagur 20. desember kl. 13:00 og 15:00

Í 1000 ár hafa bókaálfarnir Una og Snotra búið í leynilegum bókahelli við sjóinn. Þær eru uppátækjasamir álfar sem elska að safna góðum sögum og ævintýrum. Í gegnum tíðina hafa þær fyllt hellinn af bókum og furðulegum fjársjóðum sem hafið hefur fært þeim.

En þegar þeim berast óvænt skilaboð frá mannsbarni og hafið færist sífellt nær taka undarlegir hlutir að gerast. Á jólanótt breytist allt og bókaálfarnir leggja af stað í stærsta ævintýri lífs síns!

Sýningin er hlý, fyndin og töfrandi og fjallar um vináttu, sköpunarkraft og að þora að stíga inn í óvissuna og skapa sína eigin sögu.

Upplifðu töfrana í návígi!

Börnin sitja fremst á mjúkum og þægilegum sessum, í mikilli nálægð við álfana, á meðan foreldrar og aðrir fullorðnir sitja í sætum fyrir aftan. Þannig fá yngstu áhorfendurnir tækifæri til að upplifa töfrana í bókahellinum alveg í návígi!

Að sýningu lokinni gefst börnunum tækifæri til að láta mynda sig með álfunum og fá lítið plakat með litamynd til að taka með sér heim.

Location: Hafnarfjörður Library

Frumsýning: 29. nóvember 2026

Lengd: Um 40 mínútur

Listrænt teymi:
Leikarar og sviðsetning:
Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir.

Höfundar verks: Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir.

Tónlist: Rakel Björk Björnsdóttir og Stefán Örn Gunnlaugsson.

Upptökur og útsetning: Stefán Örn Gunnlaugsson.

Búningar: Viktoría Sigurðardóttir (yfirhönnun), Klara Sigurðardóttir, Stefanía Adolfsdóttir og Freyja Björk Gunnarsdóttir.

Gervi: Hildur Emilsdóttir.

Hljóð- og ljósahönnun, auk tæknikeyrslu: Konrad Groen.

Sviðsmynd: Sigurður Halldórsson, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir.

Photographs: Óli Már.
Plakat og uppsetning aðal kynningarefnis: Hafdís Ragnarsdóttir.

Aðstoð við sviðsetningu: Hugrún Margrét Óladóttir.

 

Sérstakar þakkir til Bókasafns Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarbæjar, Þjóðleikhússins og til allra þeirra sem voru teyminu til halds og trausts í ferlinu. Án aðkomu okkar besta fólks hefði verkefnið ekki orðið að veruleika.

 

Verkið er framleitt af ÞAU Company.

Þakkir til stuðningsaðila: Lenovo, Ofar, Ísfell, Luxor og Héðinn.

Suggestion portal