Employment-related summer programme for young people with disabilities
Verkherinn er sumarstarf fyrir ungt fólk, 16–20 ára, með fötlun eða skerta starfsgetu. Verkherinn er góður undirbúningur til að fara út á almennan vinnumarkað seinna á lífsleiðinni. Ungmennin fá tækifæri til að prufa nokkra vinnustaði og taka þátt í skemmtilegu námskeiði. Verkherinn er tóbakslaus vinnustaður.
Hver er vinnutími Verkhersins?
Vinnutími er frá 09:00 – 14:20 alla virka daga.
Hvernig á að sækja um í Verkhernum?
Til að sækja um þarf að fylla út rafrænt skjal. Þeir sem lenda í vandræðum með umsóknarferlið geta sent póst á netfangið verkherinn@hafnarfjordur.is

What is done in the Workshop?
Unnið er í samstarfi við fyrirtæki í bænum. Undanfarin ár hefur Verkherinn verið í samstarfi við til dæmis verslanir, Bókasafn Hafnarfjarðar, leikskóla, Krónuna, Húsasmiðjuna og fleiri. Einnig er í boði einstaklingsmiðað starf þar sem verkefni eru sniðin eftir þörfum og starfsgetu hvers og eins.