We are empowering and nurturing the representatives of the future.
Hafnarfjarðarbær kynnti nýlega tímamótaskref í eflingu og þróun á leikskólastarfi sveitarfélagsins með ákvörðun um aukinn sveigjanleika og aukið samræmi milli fyrstu skólastiganna. Þannig hefur leikskólastarfið verið fært nær starfi grunnskólanna bæði í skipulagi skólaársins og vinnutíma.
Virk hlustun, virðing og vellíðan í starfi
Helga Stefánsdóttir, Hildur Sigþórsdóttir og Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir eiga allar það sameiginlegt að vera öflugir og metnaðarfullir stjórnendur og fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar á sviði umhverfis- og skipulagsmála, fjármála, dagvistunar og menntamála. Helga og Jenný hafa starfað hjá sveitarfélaginu til fjölda ára og búa að gríðarlegri reynslu og þekkingu en Hildur er nýr og ungur stjórnandi sem ber með sér ferska vinda og sér tækifæri til umbóta og vaxtar í hverju horni og þá ekki síst á sviði stafrænnar þróunar. Viðtal við þær birtist í sérblaði Fréttablaðsins um konur í atvinnulífinu miðvikudaginn 26. janúar sem gefið var út í samstarfi við FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu.
Viðtal við Helgu Stefánsdóttur
Viðtal við Hildi Sigþórsdóttur
We are empowering and nurturing the representatives of the future.
„An important foundation and a roadmap for our children's future is laid within the country's nurseries through professional and creative work.“ segir Jenný Dagbjört Gunnarsdsóttir, þróunarfulltrúi leikskóla hjá Hafnarfjarðarbæ. Jenný vann sem leikskólakennari og leikskólastjórnandi í 21 ár áður en hún byrjaði í núverandi starfi fyrir tæpum áratug og er hún nú tengiliður leikskólastjóra og starfsfólks 16 leikskóla í bænum við miðlægan stuðning á sviði mennta og lýðheilsu. „I am in a great deal of active dialogue and collaboration with colleagues in the field, and it is there, amongst other things, that ideas for development, solutions and approaches that advance the issue are born. Hafnarfjörður is a leader in so many fields, and I believe that this active listening and letting actions speak are what really matters.”
Increased flexibility and greater coherence between the early years of schooling
Hafnarfjarðarbær kynnti nýlega tímamótaskref í eflingu og þróun á leikskólastarfi sveitarfélagsins með ákvörðun um aukinn sveigjanleika og aukið samræmi milli fyrstu skólastiganna. Þannig hefur leikskólastarfið verið fært nær starfi grunnskólanna bæði í skipulagi skólaársins og vinnutíma. “Það liggur að baki mikil vinna við útfærslu aðgerða með öllum hlutaðeigandi aðilum þ.m.t. Félagi leikskólakennara. Þegar samþykkt var árið 2019 að eitt leyfisbréf gilti til kennslu á bæði leik- og grunnskólastigi þá fórum við að upplifa flutning á milli skólastiga og fækkun á fagfólki innan leikskólanna. Við höfum um árabil veitt styrki og stuðning til réttindanáms í faginu og margir búnir að nýa sér þann möguleika. Það hefur hjálpað mikið en ljóst að mikilvægt var að stíga enn stærri skref til að snúa þróuninni við. Nú hefur þetta skref verið stigið í Hafnarfirði og munu næstu vikur og mánuðir bera vitni um árangur aðgerða. Ég er mjög bjartsýn,” segir Jenný. Markmiðið með aðgerðum sveitarfélagsins er að fjölga fagfólki í leikskólum bæjarins og jafna starfsaðstæður leik- og grunnskóla. Frá 1. janúar 2023 hefur bærinn einnig boðið upp á heimgreiðslur til foreldra barna sem hafa náð 12 mánaða aldri og eru ekki hjá dagforeldrum eða í leikskóla auk þess að bjóða upp á stofnstyrk til dagforeldra og hærri niðurgreiðslu. “Ég hef lifað og hrærst í málaflokki leikskólamála í áratugi og brenn fyrir framgangi starfsfólks, þróun starfsins og elfingu þess í takti við þarfir samfélagsins hverju sinni. Ég fæ að atast og blómstra í mínu starfi og fyrir það er ég þakklát.“