Ideas for the reception of students in a multicultural school community
Nemendur í 2. bekk í Hraunvallaskóla hafa síðustu vikur unnið að verkefni tengdu lýðræði og komu nemenda af erlendum uppruna í skólann. 44 nemendur ásamt kennurum heimsóttu Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra í morgun og afhentu henni fjölbreyttar hugmyndir um móttöku nýrra nemenda frá nemendum og foreldrum þeirra.
Heimsóttu bæjarstjóra með fjölbreyttar hugmyndir um móttöku nemenda af erlendum uppruna
Nemendur í 2. bekk í Hraunvallaskóla hafa síðustu vikur unnið að verkefni tengdu lýðræði og komu nemenda af erlendum uppruna í skólann. 44 nemendur ásamt kennurum heimsóttu Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra í morgun og afhentu henni hugmyndir frá nemendum og foreldrum þeirra um það hvað hægt er að gera til að taka vel á móti nýjum nemendum og bjóða velkomna á nýjar slóðir og í nýtt samfélag. Þetta verkefni er auk þess tengt Erasmus vinnu sem Hraunvallaskóli tekur þátt í með fjórum öðrum löndum.
21 tungumál og 152 nemendur af erlendum uppruna í Hraunvallaskóla
Kennarar munu kynna verkefnið í Póllandi í lok apríl fyrir kennurum skóla frá fjórum löndum þ.e. Póllandi, Spáni, Danmörku og Finnlandi sem verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við. Í öllum Hraunvallaskóla eru 152 nemendur af erlendum uppruna sem tala 21 tungumál. Það eru 26% af nemendum skólans. Í 2. bekk Hraunvallaskóla eru 19 nemendur af 44 af erlendum uppruna og 12 tungumál töluð í bekknum. Mikil stemning er fyrir því að halda fjölmenningarsamkomu í skólanum til að sýna fjölbreytileikann í skólasamfélaginu.
Dæmi um tillögur frá nemendum og foreldrum í fallegri bók til bæjarstjóra:
- Hafa einn dag í skólanum þar sem íslensku krakkarnir fræða nýju krakkana um Ísland; hvað krakkar á Íslandi gera eftir skóla, hvað borðað er, hvað hægt er að æfa…
- Gefa þeim íslenskan mat að smakka
- Kenna þeim um íslenska menningu og læra um þeirra menningu
- Hafa þemadaga þar sem börnin geta kynnt löndin sem þau koma frá; menningu, venjur, leiki, íþróttir, frægt íþróttafólk, etc
- Það er mikilvægt að þau sem fyrir eru kynnist menningu þeirra sem koma frá öðrum löndum t.d. er hægt að hafa mat frá löndunum í hádegismat í skólanum
- Teikna löndin okkar
- Gera verkefni um að við séum öll jafningjar
- Hafa sameiginlega matarhátíð með fleiri skólum
- Hafa tvo vini í bekknum til að hjálpa og leika með nýjum nemendum
- Sýna þeim skólann
- Tala við þau; hver er þeirra uppáhaldsmatur, hvaða íþróttir æfa þau og hvaða systkini þau eiga
- Vera dugleg/ur að spyrja þau um landið sem þau bjuggu í áður
- Alltaf bjóða þeim í leik og ekki skilja útundan
- Brosa til þeirra og bera virðingu, vera þolinmóð, kurteis og sýna vináttu
- Vera hlý og góð og samþykkja þau eins og þau eru
- Alls ekki gera grín að þeim sem eru öðruvísi
- Við getum boðið þeim vináttu, samvinnu og ábyrgð
- Hjálpa þeim að læra íslensku
- Sýna þeim þolinmæði þegar þau eru að læra tungumálið
- Gefa þeim blað með fullt af íslenskum orðum til að læra
- Merkja hlutina í skólanum svo þau geti lesið og lært nöfn hlutanna
- Hafa myndir um tilfinningar og kenna þeim að tjá tilfinningar sínar
- Skrifa orðið vinur á öðrum tungumálum (tungumál nemenda sem eru í bekknum)
- Ekki stríða
- Vera til staðar
- Hjálpa þeim að eignast vini
- Búa til vinahópa innan bekkjarins sem hittast eftir skóla
- Bjóða þeim heim að leika
- Bjóða þeim að koma og spila saman
- Hjálpa þeim við heimavinnu
- Getum boðið þeim í kvöldmat
- Bjóða þeim á íþróttaæfingar
- Sýna þeim skemmtilega staði í Hafnarfirði
- Koma með fræðilegt efni á tungumáli þeirra ef það er til
