17 projects received cultural grants
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 17 verkefni styrk að þessu sinni.
Aðilar og verkefni sem auðga og dýpka listalíf bæjarins
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 17 verkefni styrk að þessu sinni.
Menningarstyrkir eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.
Styrkþegar í fyrri úthlutun menningarstyrkja 2023
- Pláneta ehf. Skynjunarleikstund. 200.000.- kr
- Elvar Gunnarsson. Sýningarviðburðir – Litla Gallerý. 800.000.- kr
- Hanna Björk Guðjónsdóttir. Aggi og Mæðgurnar stíga á svið. 200.000.- kr
- Rakel Björk Björnsdóttir. ÞAU – útgáfutónleikar í Bæjarbíó. 320.000.- kr
- Sirkus Ananas, félagasamtök. Sumar sirkus. 200.000.- kr
- Andrés Þór Gunnlaugsson Síðdegistónar í Hafnarborg 2023-2024. 600.000.- kr
- Jasper Matthew Bunch. Appolló listahátíð. 750.000.- kr
- Kirstín Erna Blöndal. Tónlistarsköpun á hjúkrunarheimilum. 200.000.- kr
- Foreldrafélag Hvaleyrarskóla. Hátíð á Holtinu. 100.000.- kr
- Trausti Dagsson. Svörður. 100.000.- kr
- Björn Thoroddsen. Garðveisla Bjössa Thor. 200.000.- kr
- Edda Lilja Guðmundsdóttir. Garnival. 100.000.- kr
- Helena Björk Jónasdóttir. Balletstyrkur. 100.000.- kr
- Ólafur Guðlaugsson. Hjarta Hafnarfjarðar – OFF VENUE. 300.000.- kr
- Jessica Anne Chambers Prinsessur. Easter Egg Hunt. 100.000.- kr
- Þórður H Hilmarsson. Samtónleikar karlakórsins Þrestir og Karlakórsins Svanir í Hafnarfirði. 75.000.- kr
- Lúðrasveit Hafnarfjarðar. Tónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar veturinn 2022-2023. 200.000.- kr
Ekkert verkefni hlaut samstarfssamning til tveggja eða þriggja ára að þessu sinni en í gildi eru sex samstarfssamningar vegna verkefnanna Guitarama – Gítarveisla Bjössa Thor, HEIMA tónlistarhátíð, Hjarta Hafnarfjarðar, Sveinssafn – stefnumót listar og náttúru, Sönghátíð í Hafnarborg og Víkíngahátíð á Víðistaðatúni.
Hamingjuóskir til styrkþega
Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju! Auglýst verður eftir umsóknum fyrir síðari úthlutun ársins 2023 í ágúst. Vakin er sérstök athygli á því að opið er fyrir umsóknir til 23. apríl um örstyrki til verkefna á Björtum dögum sem fara fram í júní og fagna 20 ára afmæli í ár.