Address of the Valkyrie of Hafnarfjörður 2023
Hafnfirska söngkonan Klara Elíasdóttir er Fjallkona Hafnarfjarðar 2023. Klara frumflutti lag sitt Loforð sem ávarp og ástarljóð Fjallkonunar 2023 til Hafnarfjarðar á sjálfan þjóðhátíðardaginn í hjarta Hafnarfjarðar að viðstöddu fjölmenni.
Hafnfirska söngkonan Klara Elíasdóttir er Fjallkona Hafnarfjarðar 2023. Klara frumflutti lag sitt Loforð sem ávarp og ástarljóð Fjallkonunar 2023 til Hafnarfjarðar á sjálfan þjóðhátíðardaginn í hjarta Hafnarfjarðar að viðstöddu fjölmenni.
Loforð
Höfundur: Klara Ósk Elíasdóttir
Þar sem stöðuvötnin hittast
Við hraunsins hvössu brún
Þar sem haf og himinn kyssast
Þar mætumst ég og þú
Þar sem Helgafellið gnæfir
Yfir þreyttan göngugarp
Þar Heiðmörk fögur þræðir
Mitt hjarta hundraðfalt
En í skiptum fyrir ást mína
Fyrir eilífa sumarnóttina
Nokkur loforð gefðu mér
Láttu fáfræði og hatur
Ekki eitra hjartað þitt
Væri himinninn ekki dapur
Ef regnboginn væri í einum lit
Hættu að kvarta yfir veðri
Það gerir ekkert til
Þó það rigni og það blási
Ef þú átt þak yfir höfuðið
Megi þessi loforð verða byrinn
Og í brjósti þér kompásinn
Sem verða í hjarta þínu vitinn
Og vísa rétt í sérhvert sinn
Að lokum skaltu lofa
Að þessi skilaboð frá mér
Viti sérhver maður, kvár og kona
Í þúsund ár á eftir þér
Og í skiptum fyrir ást mína
Stjörnubjarta vetrarnóttina
Nokkur loforð gefðu mér
Taktu alltaf vel á móti
Þeim sem flýja heimsins böl
Þau sömu forréttinda njóti
Og þau sem frelsið fá í vöggugjöf
Hættu að kvarta yfir veðri
Það gerir ekkert til
Þó það rigni, blási, frysti, snjói
Þú átt þak yfir höfuðið
Hérna hjá þér skal ég hvíla
Þar sem skipin sigla heim
Hér mun Hamarinn eilíft skýla
Landi og firði, okkur tveim
———–
Takk Klara og til hamingju með þetta frábæra lag.
Til hamingju með daginn kæru Hafnfirðingar!
———–
Innilegar þakkir frá Fjallkonu Hafnarfjarðar 2023 fá:
- Hafnarfjarðarbær og frábær framkvæmdanefnd 17. júní fyrir að trúa á mig og standa við bakið á mér í öllum mínum klikkuðu hugmyndum. Þið eruð til fyrirmyndar!
- Halldór Gunnar Pálsson fyrir að semja með mér lagið og gera sólarhringinn þinn að 25 klukkustundum fyrir mig.
- Helga Margrét Marzelíusardóttir fyrir að gera æðislega útsetningu fyrir kórinn.
- Margrét Gauja Magnúsdóttir fyrir að trúa á mig og hvetja síðan ég var 14 ára gömul og troða mér í ýmist leðurbuxur eða þjóðbúninga! Lovjúlongtæm!
- Karlakórinn Þrestir og Árni Heiðar Karlsson Takk fyrir að vera memm strákar! Þvílíkur heiður að syngja með ykkur!
- Sandra Karlsdóttir fyrir peppið, vináttuna og aðstoð við undirbúning!
- Víkingarnir Ingó & Erna fyrir að lána okkur fallega sverðið sem birtist á myndinni.
- Ásta Björnsdóttir fyrir að hjálpa mér við búninginn, segja mér frá þjóðbúningunum okkar og vera mér til halds og trausts í undirbúning. Dásamleg!
- Óli Már elsku frændi fyrir að taka myndina og galdra fram nákvæmlega það sem ég ímyndaði mér!
- Hildur Ösp Agnars fyrir hárið á myndinni! Svo þakklát að þú fléttaðist inn í líf mitt!
- Elín Reynis og fyrir að gera mig sæta fyrir myndina!
- Silla á Hárbeitt fyrir að gera mig svona fína á daginn sjálfan! 20+ árum síðar ennþá að bralla saman verkefni.. Samt eldumst við ekki neitt!
- Jeremy fyrir að halda mér á jörðinni. Bestur í heiminum.
- Mamma & pabbi fyrir að styðja mig af öllu hjarta í einu og öllu.
- Amma Gauja fyrir að vera minn stærsti aðdáandi alltaf. Fyrir að kenna mér að konur eru konum bestar, konur eiga að taka sér pláss og þær verða ekkert að vera vinsælar meðan þær gera það. Fylgja hjartanu og áfram gakk… helst í hælaskóm. Sakna þín. Þetta var fyrir þig…