Þriðjudaginn 7. nóvember kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður sópransöngkonan Bryndís Guðjónsdóttir gestur Antonia Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á efnisskránni eru aríur úr óperum og óperettum eftir Verdi, Strauss og Bernstein. Yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er „Partý og plat“.

Bryndís Guðjónsdóttir, sópran, lauk framhaldsnámi í söng árið 2015 frá Tónlistarskóla Kópavogs þar sem hún lærði hjá Önnu Júlíönu Sveinsdóttur. Þaðan lá leiðin í Listaháskóla Íslands í eitt ár þar sem hún lærði hjá Kristni Sigmundssyni, Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Þóru Einarsdóttur. Bryndís útskrifaðist síðan með bæði bakkalár- og meistaragráðu frá Mozarteum-tónlistarháskólanum í Salzburg þar sem hún lærði hjá Michèle Crider. Bryndís er sigurvegari nokkurra keppna í Evrópu og má þar nefna XVIII Certamen Nuevas Voces Ciudad de Sevilla á Spáni (2022), Riccardo Zandonai á Garda á Ítalíu (2021), Duschek í Prag, Tékklandi (2018), og Ungir einleikarar (2018). Þá hefur Bryndís komið fram á fjölda tónleika, svo sem með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum Ungra einleikara undir stjórn Daniels Raiskin (2018), jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen (2021) og í Ævintýrinu um Töfraflautuna undir stjórn Kornilios Michailidis (2023).

Bryndís er reglulegur gestur Konunglegu filharmoníunnar í Prag og hefur til að mynda sungið sópransólóið í Carmina Burana með þeim í Liederhalle Stuttgart og mun syngja það aftur með þeim vorið 2024. Þá söng hún einnig sama verk árið 2022 í  Norðurljósasal Hörpu með Hljómfélaginu undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Vorið 2023 söng hún svo hlutverk Næturdrottningarinnar í Óperuhúsinu í Kassel í Þýskalandi, Cunegonde úr óperunni Candide eftir Bernstein í Óperuhúsinu í Kiel í Þýskalandi og Contessu úr óperunni Gli uccellatori eftir Gassmann í Teatro Verdi í Martina Franca á Ítalíu. Það sem ber hæst um þessar mundir hjá henni er loks Óperugala í Óperuhúsinu í Kiel, hlutverk Belindu úr óperunni Dídó og Eneas eftir Purcell í Vilníus í Litháen, auk þess að syngja Ad genua eftir Önnu Þorvaldsdóttur með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kór Hallgrímskirkju. Þá mun hún koma fram á nýárstónleikum í Teatro Maestranza í Sevilla á Spáni með Konunglegu sinfóníuhljómsveitinni í Sevilla undir stjórn Lucas Macías.

Antonia Hevesi, a pianist, has been the artistic director of the lunchtime concerts at Hafnarborg since their inception, and they have been a regular feature of the museum's programme since 2003. There, Antonía has been joined by many of the country's leading singers, with the aim of the concerts being to give visitors the opportunity to enjoy live music at their leisure. The lunchtime concerts are usually held on the first Tuesday of each month during the winter season.

The concert starts at 12 noon and will last for about half an hour. The venue opens at 11:30 am and the concert is open to all, subject to capacity. Admission is free.

Suggestion portal