Hafnarfjörður's Artist in Residence 2024
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 24. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2024. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Skilafrestur tilnefninga er til 1. febrúar.
Hver verður bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2024?
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 24. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2024 við hátíðlega athöfn í Hafnarborg. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Pétur Gautur var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2023.
Skilafrestur tilnefninga er til 1. febrúar 2024
Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024 fær greidda 1,5 milljónir króna. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði á vef Hafnarfjarðarbæjar eða með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is
Tengt efni: