Hátíð í Hellisgerði  

Báðir álfar en þó ekki bræður, Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur, verða meðal þeirra sem verða á kreiki í Hellisgerði sunnudaginn 25. ágúst. Barnahátíð sem garðurinn umvefur. Gleði í tvær klukkustundir, frá klukkan 14-16.

Andlitsmálun, dansarar frá Listdansskóla Hafnarfjarðar, sögustund bókaálfs Bókasafns Hafnarfjarðar, útileikir, sápukúlur og sykurpúðar!

Já, dagskráin stækkar með hverjum deginum. Vert er að taka daginn frá og eiga hamingjustund með álfum og öðrum gleðigjöfum á Hátíð í Hellisgerði.

  • 14:15   Sögustund bókaálfs Bókasafns Hafnarfjarðar við tjörnina
  • 14 – 16 Sirkússmiðja með Sirkús Ananas
  • 14 – 16 Andlitsmálning barnanna í Gróðurhúsinu
  • 14:30   Benedikt búálfur
  • 14:45   Kjalar
  • 15:00   Mæja jarðaber
  • 15:15    Íþróttaálfurinn

Everyone welcome!

Suggestion portal